Dagbók Sivjar Friðleifsdóttur

Vikan 4.-10. sept. 2010

Fimmtudagur 9. september

Kl.10:30 hefst fundur á Alþingi.

Kl.13:30 hefst mín vakt á forsetastóli.

Miðvikudagur 8. september

Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins.

Kl.13 er fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.

Þingi lauk um kl.14:30.

Seinni partinn bjuggum við Hákon til pestó úr basilikum-uppskerunni.

Kl.17:15 var keppt í dýfingum í Nauthólsvíkinni.

Sjóbaðs- og sjósundsfélag Reykjavíkur(SJÓR) stóð fyrir keppninni, en stefnt er að því að halda hana árlega.

Kl.18:30 hófst fundur í Sundsambandi Íslands(SSÍ).

Þriðjudagur 7. september

Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins.

Kl.12 hófst fyrri vakt mín á forsetastóli.

Um miðjan daginn var gerð útför Björns Ingvarssonar frá Hafnarfjarðarkirkju.

Kl.14:30-16:00 var seinni vakt mín á forsetastóli.

Mánudagur 6. september

Kl.10:15 hófst fundur í forsætisnefnd Alþingis.

Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi þar sem þingsályktun mín um að unnin verði áætlun um ferðamennsku á miðhálendinu var samþykkt.

Hér er tillagan og hér er nefndarálitið.

Hér eru atkvæðaskýringarnar (klikkið á "horfa").

Að mínu mati er hér um stórmál að ræða því mjög brýnt er að fara strax að huga að því hvernig við ætlum að taka á móti 1 milljón ferðamanna upp úr árinu 2016 án þess að ganga of nærri umhverfinu.

Kl.12-13 var mín vakt á forsetastóli.

Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur.

Kl.15:00-16:30 var seinni vakt mín á forsetastóli.

Kl.17 er sjósund.

Síðan fór ég í þingið aftur til að ræða um breytingar á stjórnarráðinu.

Hér er hægt að sjá upptöku af henni.

Sunnudagur 5. september

Dagurinn fór í stúss heima við eftir 5 daga fjarveru á hálendi Íslands.

Um kvöldið skrifaði ég grein um þingsályktun mína um áætlun um ferðamennsku á miðhálendi Íslands, en tillagan verður samþykkt á Alþingi á morgun.

Er þetta þriðja tillagan sem ég fæ samþykkta á þessu þingi(1.bann við nektardansi, 2.hafnar verði bólusetningar ungbarna gegn pneumókokkum sem valda m.a. eyrnabólgun, 3.gerð verði áætlun um ferðamennsku á miðhálendinu). 

Á morgun verður líka samþykkt þingsályktun frá Höskuldi Þórhallssyni. Fyrr á þinginu var samþykkt tillaga frá Guðmundi Steingrímssyni(öll erum við stjórnarandstæðingar).

Einnig hafa verið samþykktar tillögur frá Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, Skúla Helgasyni og etv.fleirum.

Þetta er jákvæð breyting á störfum þingsins því hér áður fyrr var kannski ein þingmannatillaga samþykkt á hverju þingi.

Traust á Alþingi er lítið og því gaman að segja frá þessari jákvæðu breytingu á starfsháttum þingsins.

.Laugardagur 4. september

Dagurinn nýttist í að uppfæra dagbókina á vefnum og setja inn myndir frá hálendisgöngunni um Laugarveginn milli Landmannalauga og Þórsmerkur.

Um kvöldið kom Gunnar Þór Gunnarsson, leiðsögumaður og skólafélagi minn, í heimsókn.