Dagbók Sivjar Friðleifsdóttur

Vikan 17.-23. apríl 2010

Föstudagur 23. apríl

Hér er viðtalið fræga við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, á BBC Newsnight um daginn, þar sem hann fjallaði um mögulegt Kötlugos.

Í hádeginu synti Einar Skúlason, oddviti framboðslista framsóknarmanna í Reykjavík, yfir Fossvoginn frá Kópavogi til Reykjavíkur í 3,3 gráðu heitum sjó.

Sýndi hann þar og sannaði að grannir og spengilegir menn geta synt þó nokkra vegalengd í ísköldum sjó.

Ísleifur Friðriksson og Árni Jónsson, starfsmenn ÍTR, sáu um öryggismál  hans á leiðinni.

Ísleifur telur að um 10 Íslendingar geti þreytt þetta sund í svo köldum sjó um þessar mundir og að Einar sé einn af þeim.

Fimmtudagur 22. apríl

Eftir hádegi fórum við Steini í sumardagskaffi í félagsheimili Gróttu, en konur úr Kvenfélaginu Seltjörn sáu um veitingarnar.

Síðan fórum við á fjölskylduhátíð framsóknarmanna í Reykjavík í tilefni sumardagsins fyrsta.

Kl.16:30 tók ég mann í viðtal í matsal Alþingis.

Miðvikudagur 21. apríl

Kl.9 fór ég til Lilju í Greiðunni.

Kl.14 kom að fyrirspurn minni um rjúpna-, gæsa- og hreindýraveiðar á austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Kl.14:30-16:00 var ég á ársfundi Landsspítala-Háskólasjúkrahúss(LSH) þar sem stefna sjúkrahússins til ársins 2016 var kynnt.

Kl.17 hófst glæsileg veisla heima hjá Leifi bróður í tilefni fertugsafmælis hans.

Við mamma, Gunnar Kvaran, Ingunn systir, Árni bróðir og Sigga frænka, héldum ræður fyrir hann í tilefni afmælisins.

Í dag var dreift á Alþingi fyrirspurn minni um hjúkrunarrými og heimaþjónustu.

Þriðjudagur 20. apríl

Fór í morgunkaffi á stofuna til pabba.

Kl.10:15 var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis þar sem Haraldur Briem, sóttvarnarlæknir, kom að minni beiðni til að upplýsa nefndina um viðbrögð vegna eldgosa.

Kl.12 var fundur forsætisnefndar Alþingis.

 Í dag hefur mikið verið fjallað um yfirlýsingar forseta Íslands vegna eldgosa á Íslandi.

Hér eru tvær fréttir sem sýna þá umfjöllun.

Frétt 1 af mbl.is og frétt 2 af mbl.is.

Kl.16:00-17:30 var mín vakt á forsetastóli.

Kl.18:00-20:30 var fundur í stjórn Sundsambands Íslands.

Þaðan fór ég á fund framsóknarmanna í Hafnarfirði þar sem rætt var um komandi sveitarstjórnarkosningar.

Fundinum lauk um kl.23.

Hér er framboðslisti framsóknarmanna í Hafnarfirði sem samþykktur var á mánudaginn síðasta.

Mánudagur 19. apríl

Kl.11-16 var þingflokksfundur framsóknarmanna haldinn á flokksskrifstofunni á Hverfisgötunni.

Tveir gestir komu á fundinn, þeir Ágúst Karlsson, efnafræðingur sem fjallaði um umhverfisvæna orku og Ármann Höskuldsson, jarðfræðingur, en hann fylgist með eldgosinu í Eyjafjallajökli um þessar mundir.

Kl.20 hófst fundur fulltrúaráðs framsóknarmanna í Kópavogi, en á fundinum var gengið frá framboðslistanum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Sunnudagur 18. apríl

Dagurinn nýttist að hluta til í að undirbúa afmælisgjöf fyrir Leif bróður.

Fór líka í góða göngu um Suðurnesið.

Laugardagur 17. apríl

Kl.11 var morgunkaffifundur framsóknarmanna að Digranesvegi 12 í Kópavogi.

Síðan hringdi ég til Noregs og aflýsti fyrirlestri sem ég átti að halda þar í lok næstu viku vegna óvissu um flugferðir vegna eldgossins.

Seinni partinn fórum við Hákon og Sindri í Borgarleikhúsið að hlusta á upplestur á skýrslu rannsóknarnefndarinnar um bankahrunið.

Dagurinn nýttist líka í að lesa gögn og færa salatplönturnar í stærri potta.