Vefur Al˛ingis Senda tˆlvupÛst til Siv Vefur FramsÛknarflokksins Ganga Ì flokkinn VefslÛir fiingm·l LÌf og starf ¡lit DagbÛkin Greinar og rÊur Pistlar Myndir
    Ekki má veikja LSH

    18/03/2008

    Í síðustu viku fréttist að tveir af lykilstjórnendum Landspítala-háskólasjúkrahúss(LSH), Magnús Pétursson og Jóhannes M. Gunnarsson, myndu láta af störfum á næstu dögum og að spítalinn eigi að vera forstjóralaus í 5 mánuði. Tilkynningu um þessa ráðstöfun sendi Guðlaugur, heilbrigðisráðherra, út á afar heppilega völdum tíma fyrir sjálfan sig, þ. e. daginn eftir að þingfundum lauk fyrir páskahlé Alþingis. Gamalt trix sem allir sjá í gegnum. Strax eftir að tilkynningin fór í loftið faldi Guðlaugur sig fyrir fréttamönnum og neitaði að tjá sig. Fréttamenn eru reyndar margir undrandi á því að hann leggi það í vana sinn að vera á sífelldum flótta undan fjölmiðlum og neita að tjá sig í mikilvægum málum. Það var ekki fyrr en Guðlaugur var sakaður, á opinberum vettvangi, um að brjóta stjórnskipulega grundvallarreglu m.a. vegna utandagskrárumræðu með því að neita að standa fyrir máli sínu gagnvart þjóðþinginu að hann sá sér fært að gera tilraun til að skýra málið. Tilraunin mistókst því ekki komu neinar skýringar á því til hvers þessi gjörningur á að leiða.

    Óréttmætar trakteringar
    Forysta LSH sem nú hverfur frá á skilið að fá góð og réttmæt eftirmæli, sérstaklega eftir þær vondu og óréttmætu trakteringar sem nú hafa átt sér stað gagnvart þeim. Bæði Magnús og Jóhannes hafa staðið sig afburða vel við að halda utan um flaggskip heilbrigðisþjónustunnar, LSH, hér á landi. Á síðustu árum hafa nokkrir spítalar á höfuðborgarsvæðinu verið sameinaðir í öflugt háskólasjúkrahús sem stenst gæði á við öll helstu nágrannalönd okkar. Á mörgum sviðum spítalans erum við að ná bestum árangri á heimsvísu. Við sameiningu þessara spítala náðist samnýting og hagræðing sem hefur skilað þjóðinni afar miklum uppsöfnuðum sparnaði. Þessi sparnaður var ein forsenda skattalækkana, bættrar velferðaþjónustu og annarra verkefna sem unnin hafa verið. Bæði Magnús og Jóhannes áttu mikinn þátt í að svo vel tókst til með sameininguna.

    Hlutverk háskólasjúkrahúss
    Forysta LSH hefur átt gott samstarf við háskólasamfélagið um að gera spítalann framsækið háskólasjúkrahús á sviði rannsókna og heilbrigðisþjónustu. Sjálfstæðis- og Samfylkingarmenn hafa hinsvegar mikil plön um einkarekstur og útvistun verkefna frá LSH. Þar er ekki einungis um stoðþjónustu að ræða heldur liggja heilu deildir spítalans undir. Umfangsmikil útvistun á starfseminni veikir LSH og fer ekki saman við hlutverk þess sem háskólasjúkrahús. Guðlaugur, sem treystir einungis jámönnum úr innsta hring Sjálfstæðisflokksins og losar sig við aðra, lét einnig endurskoða uppbyggingu LSH. Tafði hann þannig verkið og tapaði þriggja milljarða framtíðarsparnaði úr rekstri þess.

    Ályktað um einkavæðingu
    Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði á Valhallarfundi í haust að framundan væru verulegar breytingar á heilbrigðiskerfinu sem ómögulegt væri að ná fram í stjórnarsamstarfi annarra flokka en Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Sagði hann orðrétt "Þar eru ótrúlega miklir möguleikar framundan sem Samfylkingin er tilbúin til að vera með okkur í en aðrir flokkar voru og hefðu ekki verið." Breytingarnar framundan að undirlagi Geirs eru því gerðar með sérstakri velþóknum Ingibjargar Sólrúnar. Sjálfstæðismenn ályktuðu á síðasta landsfundi sínum um að nú sé kominn tími til að einkavæða innan heilbrigðisþjónustunnar. Í ályktuninni segir " Því ber að huga að enn frekari einkavæðingu á öðrum sviðum s.s. á sviði heilbrigðis-, mennta- og orkumála." Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin undirbúa því að elta Bandaríkjamenn í þessum efnum, en þeir búa við óhagkvæmasta heilbrigðiskerfi þróaðra ríkja. Kerfis sem hefur leitt til þess þess að ríkir fá góða þjónustu en efnaminni litla sem enga. Við framsóknarmenn höfnum alfarið slíkri einkavæðingu.