s i v . i s Siv Friðleifsdóttir - Alþingismaður s i v . i s
Vefur Al˛ingis Senda tˆlvupÛst til Siv Vefur FramsÛknarflokksins Ganga Ì flokkinn VefslÛir fiingm·l LÌf og starf ¡lit DagbÛkin Greinar og rÊur Pistlar Myndir
    Prentvæn útgáfa
    Myndir
    Til baka
    ©Siv Friðleifsdóttir - Öll réttindi áskilin - Öll endurbirting eða endurgerð myndefnis er óheimil án skriflegs leyfis.

    Í Görðum(Igaliko) í Suður-Grænlandi er ekki áríðandi að bílarnir séu flottir né með númeraplötu. Þarna er einn stuttur vegur og mest um vert að bílinn komist nokkurn veginn á leiðarenda 08/08/2012

    Á Grænlandi er betra að hafa með sér byssu ef maður ætlar að dvelja útivið í óbyggðum. Hér er byssa Dananna með ungu börnin að koma um borð í bátinn til Bóbó(Jóhann Norðfjörð) og Massa í Görðum(Igaliko) í Suður-Grænlandi 08/08/2012

    Farangur Dananna frammi í skut hjá Bóbó(Jóhann Norðfjörð) og Massa í bátnum við Garða(Igaliko) í Suður-Grænlandi 08/08/2012

    Massi, háseti um borð hjá Bóbó(Jóhann Norðfjörð), athugar hvernig er best að keyra bátinn upp í fjöruna rétt hjá Görðum(Igaliko) á Suður-Grænlandi. Þarna voru danskir ferðalangar með ung börn settir úr 08/08/2012

    Bóbó(Jóhann Norðfjörð) er þrautvanur skipstjóri og var lengi á sjó frá Vestmannaeyjum. Hann er líka byssusmiður, þrælgóð skytta og hefur unnið til verðlauna í skotfimi. Bóbó hefur í nokkur sumur unnið á Grænlandi við að sigla við erfiðar aðstæður fyrir Blue ice, sem er þekkt ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu. Hann kallar ekki allt ömmu sína 08/08/2012

    Siglt frá Dönunum rétt við Garða(Igaliko) í Suður-Grænlandi. Þeir voru með talsverðan búnað enda með þrjú lítil börn með sér 08/08/2012

    Siglt frá Dönunum rétt við Garða(Igaliko) í Suður-Grænlandi 08/08/2012

    Fallegur ísjaki í sjónum við Garða(Igaliko) í Suður-Grænlandi 08/08/2012