Þar sem ég verð erlendis næstu daga og ekki víst með tölvusamband verður heimasíðan uppfærð eftir því sem kostur er þar til ég kem heim.
Mánudagur 26. júlí
Kl.17 er flug til Færeyja, en þar verður fundur Norræna menningarsjóðsins haldinn að þessu sinni.
Hér eru vefir sem hægt er að kíkja inn á til að fylgjast með fréttum í Færeyjum, www.portal.fo og www.sosialurin.fo.
Sunnudagur 25. júlí
Fjölskyldan hélt til veiða í dag, en ég hætti við að fara því á morgun liggur leið mín á fund til Færeyja og ég þurfti að klára að lesa gögn fyrir fundinn.
Hluti dagsins fór í að taka til í bílskúrnum og fara á Sorpu.
Um kvöldið pakkaði ég í tösku fyrir Færeyjarferðina.
Laugardagur 24. júlí
Kl.11:30 tók ég á móti góðum norskum gestum, Martin Ystenes og fjölskyldu.
Sýndi ég þeim Alþingi.
Martin er prófessor í verkfræði í Tækniháskólanum í Noregi(NTNU Norges teknisk-naturvitenskaplig universitet).
Hefur Ystenes fjölskyldan ferðast um allt Ísland í nær 3 vikur og fór nú síðast þvert yfir hálendið.
Þau eru orðnir miklir Íslandsvinir og stefna að því að heimsækja landið aftur síðar.
Hér er heimasíða Martins www.ystenes.com.
Þessa mynd og texta setti hann inn á vefinn eftir heimsóknina.
Um kvöldið hjólaði ég niður í bæ og fór í grillveislu í garðinum hjá Úlla og Siv.