Föstudagur 24. ágúst
Um morguninn fórum við Vigdís Hauksdóttir og Ásmundur Einar Daðason, í vinnustaðaheimsóknir á Drangsnes.
Heimsóttum við Bassastaði, síðan frystihúsið og hresst fólk sem var að beita.
Kl.12 héldum við síðan opinn fund á Café Riis.
Seinni partinn lá leiðin suður aftur.
Fimmtudagur 23. ágúst
Um miðjan daginn ók ég vestur á Ísafjörð þar sem við Vigdís Hauksdóttir og Ásmundur Einar Daðason, héldum opinn fund með Ísfirðingum.
Um kvöldið fórum við til Hólmavíkur.
Miðvikudagur 22. ágúst
Vann í rótarýgögnum um daginn.
Kl.20-22 var opinn fundur framsóknarmanna á Akranesi.
Fín mæting var á fundinum og góð stemmning.
Þriðjudagur 21. ágúst
Í dag aflýsti ég viðtölum því ég fékk hálsbólgu.
Var því aðallega heimavið.
Mánudagur 20. ágúst
Kl.17 fór ég með Heiði í sjósund.
Hitastig sjávar er um 15 gráður.
Sunnudagur 19. ágúst
Um kvöldið eldaði ég kjúkling.
Laugardagur 18. ágúst
Fyrri partinn skrapp ég í miðbæinn að fylgjast með Reykjavíkurmaraþoninu.
Kl.18 hófst garðveisla í tilefni afmælis míns sem var fyrir viku, en þá var ég á Grænlandi.
Þóra Einarsdóttir, söngkona, kom í veisluna og söng gullfallega fyrir gesti.
Um kvöldið skrapp ég í bæinn að sjá menningarnæturflugeldasýninguna.