|
Dagbók Sivjar Friðleifsdóttur
Vikan 26.ágúst-1. sept. 2007
Laugardagur 1. september Kl.10:30 fórum við af stað með S-bahn út á Schönefeld-flugvöllinn. Á leiðinni hittum við eiturhressa 91 árs gamla konu sem bjó í austurhluta Berlínar á sínum tíma. Hún var ein á ferð og á leið til Antalyu í Tyrklandi til að slappa af og synda í sjónum. Sagðist hún nýta tækifærið til að ferðast reglulega til útlanda eftir að frelsið fékkst í kjölfar falls Berlínarmúrsins árið 1989. Sömu sögu er að segja um aðra sem ég hitti í þessari ferð og voru austan megin fram að falli Berlínarmúrsins og sameiningu Þýskalands, þetta fólk er á faraldsfæti og er að nýta frelsið til að skoða sig um í öðrum löndum. Einn Berlínarvinur okkar, sem lenti austan meginn við múrinn árið 1961, er t.d. búinn að ferðast til allra landa í Evrópu á síðustu árum nema Írlands, Spánar og Portúgals. Kl.14:05 var flogið til Keflavíkur. Um kvöldið elduðum við fjölskyldan gott hrefnukjöt. Föstudagur 31. ágúst Dagurinn nýttist m.a. í að skoða fleiri svæði sem mamma þekkti til frá námsárum sínum í Berlín. Einnig fórum við í Hein Gericke mótorhjólavöruverslunina og gengum upp Kurfurstendamm sem er mikil verslunargata. Fimmtudagur 30.ágúst Kl.9 fórum við af stað til Jannowitzbrucke að hitta Burkhard Menzel. Í framhaldinu fórum við í siglingu um ána Spree. Siglt var undir fjölmargar brýr á vel útbúnum fljótabát. Á siglingunni sáum við gamlar og nýjar byggingar, en mikil uppbygging á sér stað í Berlín um þessar mundir, sér í lagi í fyrrum austurhluta borgarinnar sem tilheyrði þýska Alþýðulýðveldinu( DDR, Deutsche Demokratische Republik) á sínum tíma. Uppbyggingin við þinghúsið í Berlín er í skemmtilegum og nýtískulegum stíl þar sem gamli og nýji tíminn kallast á. Einnig var afar sérstakt að sjá rústir fyrrum þinghúss þýska Alþýðulýðveldisins(DDR). Að siglingu lokinni gengum við um gamla Nikolai hverfið, gamla gyðingahverfið, Hackeschehöfe og síðan nýja Sony hverfið við Potsdamer Platz. Miðvikudagur 29. ágúst Kl.9:30 fórum við af stað í heimsókn til Menzel-hjónanna til að hitta þau og Schulz-Borck-hjónin, en þau eru öll vinafólk mömmu síðan hún var hér í Berlín í háskólanámi. Tókum við S-bahn um Hauptbahnhof og Ostbahnhof til Friedrichshagen. Þegar þangað var komið skoðuðum við okkur um í bæjarhlutanum. Mörg gömul og falleg hús eru þarna sem nú er verið að endurnýja. Síðan fórum við í heimboð til Menzel-hjónanna, borðuðum góða máltíð með þeim og Schulz-Borck-hjónunum og rifjuðum upp skemmtilega tíma. Um kvöldið skrifaði ég pistiliinn Eystrasaltið bráðlega dautt haf? um mjög umdeilda gasleiðslu, Nord Stream, sem verið er að undirbúa milli Rússlands og Þýskalands. Spennandi verður að fylgjast með framvindu mála hvað gasleiðsluna varðar. Þriðjudagur 28. ágústKl.8:30 fórum við Illugi Gunnarsson, alþingismaður, af stað í þinghúsið í Berlín að taka þátt í þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins. Á þingmannaráðstefnunni var fjallað um mengun Eystrasaltsins og aðgerðir til að sporna við henni. Einnig samþykkti þingmannaráðstefnan ályktun sem lýtur að þeim málum sem við ræddum hér í gær og í dag, þ.e. orku-, velferðar- og mengunarmál á Eystrasaltssvæðinu. Miðað við upplýsingar sem fram komu á ráðstefnunni getum við Íslendingar prísað okkur sæla að búa við eitt hreinasta haf í heimi sem tryggir okkur heilnæman fisk til matar og sölu, en þá góðu stöðu þurfum við að verja með öllum tiltækum ráðum. Hér er pistill sem ég skrifaði um Mengun Eystrasaltsins. Að þingmannaráðstefnunni lokinni fór Illugi Gunnarsson, alþingismaður, heim en minn tími nýttist í að skoða hluta Berlínar. Ég verð í fríi með mömmu því hún var hér í háskólanámi á sínum tíma og ætlar að sýna mér Berlín næstu daga. Mánudagur 27. ágústKl.7:30 fórum við Illugi Gunnarsson, alþingismaður, af stað í þinghúsið í Berlín að taka þátt í þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins. Áður en ráðstefnan hófst var samræmingarfundur í norrænu sendinefndinni. Á ráðstefnunni í dag var rætt um orku- , vinnumarkaðs- og félagsmál á Eystrasaltssvæðinu. Í lok ráðstefnunnar í dag var fundur í ályktunarnefndinni þar sem við breyttum drögum að ályktun ráðstefnunnar, en öll ríki þurfa að vera samþykk innihaldi ályktunarinnar, sem gengið verður frá á morgun. Eftir fundinn lá leið þátttakenda ráðstefnunnar rakleitt í móttöku forseta borgarstjórnar Berlínar, Walter Momper. Sunnudagur 26. ágúst Kl.8 flugu við mamma til Berlínar, en þar tek ég þátt í þingmannaráðstefnu Eystrasaltssvæðisins fyrir hönd Norðurlandaráðs næstu daga. Illugi Gunnarsson, alþingismaður, sækir einnig sömu ráðstefnu. Gamall háskólafélagi mömmu, Burkhard Menzel og kona hans, Irene, sóttu okkur á flugvöllinn, en mamma var í námi hér í Freie Universitat í Vestur-Berlín á sínum tíma í fjögur ár. Buðu þau okkur í Datscha-ið sitt rétt hjá Schönefeldflugvellinum, sem eru krúttlegt sumarhús þar sem fólk getur ræktað sína eigin ávexti og grænmeti. Schönefeldsvæðið, þar sem Datscha-ið þeirra er, tilheyrði DDR(Deutsche Demokratische Republik), eða Austur-Þýskalandi, á sínum tíma. Um kvöldið fórum við í góðan göngutúr meðfram Spree, framhjá Brandenburgerhliðinu og upp Unter den Linden að Alexanderplatz.
|