Laugardagur 8. september
Kl.11 var morgunkaffifundur framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Eftir hádegi fórum við Leópold Sveinsson, Ingibjörg Leópoldsdóttir, Ólafur Guðgeirsson og Húnbogi Þorsteinsson að hjóla á æfingasvæði Vélhjólaíþróttaklúbbsins(VÍK) í Bolaöldu við Litlu kaffistofuna.
Áður en við lögðum í hann fórum við í góðan hlífðarfatnað til að verjast höggum.
Skemmtum við okkur mjög vel í rigningunni fram eftir degi og lukum túrnum á rjúkandi heitu kaffi og kökum í félagsheimilinu.
Um kvöldið fór ég í fimmtugsafmæli, Guðmundar Ingólfssonar, í KR-heimilinu og þaðan í útskriftarveislu Bryndísar Bjarnarson í Mosfellsbæ.
Síðan lá leiðin út á Snæfellsnes með fjölskyldunni.
Föstudagur 7. september
Kl.8:40 var tími hjá tannlækni.
Var síðan á skrifstofunni fram að hádegi.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness í félagsheimili Seltjarnarnessi.
Kl.14-16 var fundur með Umhverfisnefnd Vélhjólaíþróttaklúbbsins(VÍK), en nefndin er að vinna mjög metnaðarfullt starf við að skoða framtíðarskipulag á aðstöðu og lagaumhverfi sem uppfyllir þarfir þeirra sem aka um á vélhjólum með það að markmiði að sporna gegn utanvegakstri.
Er hér um brýnt náttúruverndarmál að ræða sem nefndin hefur tekið forystu í að vinna.
Um þessar mundir eru líklega upp undir 8000 torfæruhjól í landinu og því eðlilegt að skapaður sé skýrari rammi utanum notkun þeirra þ.a. þarfir þessa hóps séu uppfylltar á skynsamlegan hátt.
Fimmtudagur 6. september
Fyrir hádegi nýttist tíminn í viðtöl og að ganga frá beiðni um fund í utanríkismálanefnd Alþingis vegna ákvörðunar formanns Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, um að draga Ísland úr þjálfunarverkefni í Írak sem er á vegum Nató-ríkjanna og byggir á ályktunum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Á sama tíma og Ísland dregur sig eitt Nató-ríkja út úr verkefni sem byggir á ályktunum Öryggisráðs S.þ. erum við að sækjast eftir sæti í sama Öryggisráði.
Erfitt er að átta sig á hvaða forsendur liggja að baki ákvörðuninni, en í dag segir utanríkisráðherra í DV ''....ríkisstjórnarsáttmálanum að við hörmum þennan stríðsrekstur og teljumst ekki aðilar að honum lengur. Við stöndum heilshugar á bak við uppbyggingu lýðræðislegs samfélags en ekki með þátttöku í stríðsrekstri.''
Þar sem ráðherrann er með þessum orðum, á opinberum vettvangi, að gefa í skyn að þátttaka Íslands í þjálfunarverkefni Nató megi jafna við stríðsrekstur er rétt að undirstrika að þjálfunarverkefnið styðst við samþykktir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og er ekki stríðsrekstur.
Rétt fyrir hádegi fór ég í fréttaviðtal á rúv-útvarpi vegna ákvörðunar utanríkisráðherra, en hér er tengill á fréttina.
Kl.15:50 fór ég í fréttaviðtal hjá Guðjóni Helgasyni, fréttamanni á Stöð 2, vegna ákvörðunar utanríkisráðherra, en hér er tengill á fréttina.
Kl.16 var fundur á flokksskrifstofunni í málefnanefnd Framsóknarflokksins sem fjallar um umhverfis- og menntamál.
Um kvöldið fór ég í góðan göngutúr umhverfis Bakkatjörn, framhjá Gróttu og með viðkomu hjá mömmu á Nesveginum.
Miðvikudagur 5. september
Kl.9 skrapp ég í morgunkaffi á stofuna hjá pabba.
Var síðan á skrifstofunni til kl.12, en þá var súpufundur hjá Kvenréttindafélagi Íslands að Hallveigastöðum þar sem íranska baráttukonan Maryam Namazle hélt fyrirlesturinn "Réttindi kvenna, blæjan og íslamskt yfirvald" eða "Women´s Rights, the Veil and Islamic Rule".
Fyrirlesturinn var mjög áhugaverður og telur Maryam Namazle að banna eigi notkun blæjunnar þar sem hún undirstriki kúgun kvenna.
Hér er heimasíða Maryam Namazle.
Eftir fyrirlesturinn nýttist tíminn á skrifstofunni í viðtöl og fleira til kl.18.
Þriðjudagur 4. september
Kl.8:30-13:00 var ég á Barnaspítalanum hjá frænda mínum sem er allur að hressast.
Fór hann m.a. í skemmtilegan skólatíma á spítalanum hjá Helgu Þórðardóttur, kennara.
Barnaspítalinn er bygging sem hefur heppnast vel að mínu mati og er afar mikilvægt og gott starf unnið innan veggja spítalans.
Á sínum tíma var ég formaður dómnefndar arkitektasamkeppni um Barnaspítalann og formaður bygginganefndar spítalans 1996-1999 og tók því þátt í því að velja þá teikningu sem byggt var eftir og öðrum undirbúningi við bygginguna.
Þeir nefndarmenn sem tóku þátt í dómnefnd og byggingarnefnd Barnaspítalans unnu mikið þrekvirki við undibúning byggingarinnar.
Þetta get ég fullyrt í dag því síðustu daga hef ég séð með eigin augum að sú vandaða vinna hefur skilað sér margfalt tilbaka í góðum spítala.
Var síðan á skrifstofunni fram eftir degi að vinna í gögnum.
Kl.17 fór ég á fimm og hálfstíma námskeið á Grand hótelinu sem endaði á prófi til kl.23.
Mánudagur 3. september
Kl.8:30-12:00 var ég á Barnaspítalanum hjá frænda mínum sem er á góðum batavegi.
Var síðan á skrifstofunni til kl.14 en þá lá leiðin til tannlæknis.
Seinni partinn heimsótti ég tengdó og las gögn fyrir námskeið sem er á morgun.
Sunnudagur 2. september
Um miðjan daginn lá leiðin á mótorhjólasvæði Vélhjólaíþróttaklúbbsins(VÍK) í Bolöldu rétt hjá Litlu kaffistofunni til að fylgjast með spennandi Íslandsmeistaramóti í enduro.
Keppnin var hörð og strekktu þátttakendur sjálfa sig og hjólin til hins ítrasta í góðu keppnisveðri.
Við verðlaunaafhendinguna skall hinsvegar á úrhelli, svona rétt til að hreinsa keppendur og hjól.
Íslandsmeistari í enduro varð Einar Sverrir Sigurðsson, en hann vann líka titilinn í motocrossi í gær og er því tvöfaldur Íslandsmeistari í meistaraflokki í ár.
Glæsilegt hjá Einari.
Bolöldusvæðið er tiltölulega nýtt og í hraðri uppbyggingu.
Fleiri slík góð motocross/endurosvæði þurfa að koma til um land allt því mótorhjólahópurinn sem stundar þetta sport fer mjög vaxandi.
Með uppbyggingu góðra mótorhjólasvæða mun utanvegaakstur hjólanna stórminnka og líklega nánast hverfa.
Nú þegar nokkur ný svæði hafa verið tekin í gagnið, eins og Álfsnesið fyrir nokkru og nú Bolaldan, má strax merkja mun minni umræðu um utanvegaakstur hjólanna.
Seinni part dags fór ég á Barnaspítalann að heimsækja frænda minn.
-----------------------------7d72711d8ebc00b4
Content-Disposition: form-data; name="imgUrl"