Laugardagur 27. október
Kl.7:50 átti að vera beint flug til Óslóar, en þar verður Norðurlandaráðsþingið haldið eftir helgina.
Í dag er 50 ára afmæli Ísaks Mendelsohn, vinar okkar þ.a. að leiðin liggur þangað strax við komuna til Óslóar.
Ísak er giftur frænku minni Kirsti Juhlin Mendelsohn.
Vegna vélarbilunar var vélunum sem áttu að fara annarsvegar á Stokkhólm og hinsvegar á Ósló slegið saman í eina sem fór á báða staðina.
Þar sem flogið var fyrst á Stokkhólm og síðan á Ósló lenti vélin 3 tímum á eftir áætlun.
Það kom ekki að sök því Sverre frændi sótti okkur þ.a. að við mamma náðum samt að vera viðstaddar meginhluta afmælis Ísaks.
Mikið fjör var í afmælinu.
Veitingarnar voru allar heimatilbúnar og mjög glæsilegar.
Ísak, vinnufélagar hans og sonurinn David, spiluðu og sungu fyrir gestina, sem komu m.a. frá Ísrale og Íslandi, fram eftir kvöldi.
Föstudagur 26.október
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Fundurinn var sögulegur því honum stjórnaði Ingibjörg Hjartardóttir, varaforseti klúbbsins, og er það í fyrsta sinn sem kona stjórnar fundi í Rótarýklúbbi Seltjarnarness frá stofnun hans.
Kl.16 komu nokkrar konur úr Kvenfélaginu Seltjörn á Seltjarnarnesi heim til mín í myndatökur.
Kl.17 var nýja anddyrið á Grand Hótelinu opnað með viðhöfn.
Gestum var boðið að skoða bæði anddyrið og nýja hluta hótelsins.
Kl.18:30-20:30 var ég í glæsilegu sextugsafmæli Vilhjálms Ólafssonar í Stjörnuheimilinu í Garðabæ.
Fjöldi gesta mætti til að samfagna Vilhjálmi í tilefni áfangans.
Um kvöldið pakkaði ég í tösku því á morgun liggur leiðin til Óslóar, en þar verður Norðurlandaráðsþingið haldið að þessu sinni.
Fimmtudagur 25. október
Kl.12 fór ég á hádegisverðarfund.
Kl.14 kynntum við Árni Páll Árnason, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, þau mál sem efst verða á baugi á Norðurlandaráðsþinginu í Ósló í næstu viku á blaðamannafundi á Alþingi.
Kl.15 sótti ég vinnufund á Alþingi.
Kl.16 komu nokkrar konur úr Kvenfélaginu Seltjörn á Seltjarnarnesi heim til mín í myndatökur.
Kl.18:00-23:25 var ég ásamt Heiði og Ingunni systur á ljósmyndaranámskeiði hjá Pálma Guðmundssyni, ljósmyndara, í Mosfellsbænum.
Þar skoðuðum við m.a. myndir sem við tókum á námskeiðinu.
Hér er módelmynd mín af Hjalta Vignissyni, en hann sótti einnig námskeiðið.
Ljósmyndaranámskeiðið, sem tók 3 kvöld (3x4tímar), var afar vel heppnað, en þar lærðum við tæknina við að taka góðar myndir, hvernig myndavélarnar okkar virka, hvernig á að stilla þær í einstökum myndatökum, tölvuvinnslu mynda og undirstöðuatriðin í photoshop.
Hér er slóðin á heimasíðu Pálma Guðmundssonar, ljósmyndara, en þar koma fram góðar upplýsingar um ljósmyndaranámskeiðið hans.
Það er nokkuð öfugsnúið að ég er búin að taka ljósmyndir nánast daglega í tæplega 6 ár og setja rúmlega 11.500 þeirra í dagbókina hér á heimasíðuna án þess að hafa kunnað nægjanlega vel á myndavélina mína.
Það var kominn tími til að læra á græjuna!
Nú þegar ljósmyndaranámskeiðið góða er afstaðið langar mig mest af öllu að kaupa mér stærri og betri myndavél til að geta tekið enn betri myndir.
Stefni á að koma því í verk fyrir komandi jól.
Miðvikudagur 24. október
Kl.13:00-14.30 var fundur í Íslandsdeild Norðurlandaráðs á nefndarsviði Alþingis.
Kl.15 veitti Geir H. Haarde, forsætisráðherra, styrki til jafnréttisrannsókna á Hótel Hilton.
Kl.16 komu nokkrar konur úr Kvenfélaginu Seltjörn á Seltjarnarnesi heim til mín í myndatökur.
Kl.18:-23 var ég ásamt Heiði og Ingunni systur á ljósmyndaranámskeiði hjá Pálma Guðmundssyni, ljósmyndarar, í Mosfellsbænum.
Þriðjudagur 23. október
Kl.10-11 var viðtal við fulltrúa Rauða krossins þar sem við ræddum m.a. um þróun þeirra samtaka sem starfa að mannúðarmálum.
Kl.13-15 var fundur þingmanna Suðvestur-kjördæmis ásamt bæjarfulltrúum Hafnarfjarðar í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Kl.15:30-16:50 var ég á fundi þingmanna Suðvestur-kjördæmis ásamt bæjarfulltrúum á Álftanesi.
Á fundunum fórum við yfir helstu hagsmunamál sveitarfélaganna.
Kl.17:00-18:45 var fundur í afmælisnefnd Kvenfélags Seltjarnarness.
Kl.20-22 var ég á skemmtikvöldi Hörpu, félags framsóknarkvenna í Hafnarfirði, þar sem bæði var boðið upp á snyrtivöru- og gsm-símakynningu.
Var komin heim um kl.22:30.
Mánudagur 22. október
Kl.8:30-10:00 var morgunverðarfundur þingmanna Suðvestur-kjördæmis ásamt bæjarfulltrúum Garðabæjar í Jónshúsi, félagsmiðstöð eldri borgara í Garðabæ.
Kl.10:20-12:00 var fundur þingmanna Suðvestur-kjördæmis ásamt bæjarfulltrúum Mosfellsbæjar í fundarsal bókasafnsins í Mosfellsbæ.
Kl.12:30-14:30 var hádegisverðarfundur þingmanna Suðvestur-kjördæmis ásamt bæjarfulltrúum Kópavogs í Salnum í Kópavogi.
Á öllum þessum fundum fórum við yfir helstu hagsmunamál þessara sveitarfélaga.
Rætt var m.a. um áform þeirra um uppbyggingu íbúðahverfa, samgöngumál, skólamál og öldrunarmál.
Á leiðinni heim fór ég í eitt erindi og svo yfir póstinn á Alþingi.
Var komin heim um kl.16.
Kl.18-22 var ég á skemmtilegu ljósmyndaranámskeiði hjá Pálma Guðmundssyni, ljósmyndara, í Mosfellsbæ sem ég sæki í þessari viku.
Var komin heim um kl.22:30.
Sunnudagur 21. október
Kl.11 lá leiðin upp í Bifröst í Borgarfirði til að taka þátt í kjördæmisþingi framsóknarmanna í Norðvestur-kjördæmi.
Fjölmenni var á kjördæmisþinginu og umræður góðar.
Fylgdist ég með umræðum um stjórnmálaviðhorfið og drakk kaffi með þingfulltrúunum.
Um kl.15 var tekið viðtal fyrir kvöldfréttir rúv-útvarps um viðbrögð vegna stuðnings Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra og þar með yfirmanns forvarnamála á Íslandi, við að áfengi verði selt í matvöruverslunum.
Hér er sama frétt á rituðu máli af vef rúv.
Kl.18 var ég komin aftur í bæinn.