Laugardagur 10. nóvember
Kl.10 hófst miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins í Ketilhúsinu á Akureyri.
Mæting var góð en á annað hundrað manns mætti á fundinn.
Á dagskrá voru ávörp, fyrirlestur Ágústar Þórs Árnasonar og almennar umræður.
Fundurinn heppnaðist mjög vel.
Kl.18:25 flaug ég suður.
Frá Reykjavíkurflugvelli lá leiðin beint út á Viðeyjarferjubryggjuna, en þaðan sigldi góður hópur fólks út í Viðey á afar skemmtilega árshátíð Jöklarannsóknarfélags Íslands(JÖRFÍ).
Að árshátíð lokinni sigldu félagar í JÖRFÍ í land og litu við á Kringlukránni á heimleiðinni.
Föstudagur 9. nóvember
Kl.10-12 var ég í verkefnum á Alþingi.
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.13 var gerð útför Erlings Bertelssonar, lögfræðings, frá Kristskirkju Landakoti.
Seinni partur dags fór í ýmsar útréttingar.
Kl.17:30 var flug til Akureyrar því á morgun er miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins haldinn þar í bæ.
Um kvöldið var haldin skemmtileg kvöldvaka fyrir framsóknarmenn í félagsaðstöðu flokksins á Akureyri.
Fimmtudagur 8. nóvember
Kl.8:30 var fundur í utanríkismálanefnd Alþingis.
Kl.10:30-17:30 var umræða um utanríkismál á Alþingi.
Hélt ég tvær ræður í umræðunum og hlustaði á ræður flestra annarra.
Rataði hluti af málflutningi mínum í fjölmiðla eins og t.d. þessi frétt á mbl.is um ágreining ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og þessi frétt á visir.is og þessi sjónvarpsfrétt af ruv.is.
Þá skrapp ég stutt frá í hádeginu, á rótarýfund á Hótel Sögu.
Kl.15 sótti ég einnig stuttan fund í þingflokksherbergi okkar framsóknarmanna.
Kl.17:30 að umræðum loknum lá leiðin á framkvæmdastjórnarfund á flokksskrifstofunni á Hverfisgötunni, en á honum ræddum við um miðstjórnarfundinn sem haldinn verður á Akureyri á laugardaginn næsta.
Kl.18:30 var ég komin heim.
Kl.22:30 skrappp ég í heimahús til að taka mynd af kvenfélagskonu í tilefni af 40 ára afmæli félagsins á næsta ári.
Miðvikudagur 7. nóvember
Kl.8:30 var fundur í allsherjarnefnd þar sem við fórum yfir frumvarp til fjárlaga og frumvarp um tilfærslur verkefna inna Stjórnarráðs Íslands.
Kl.12 var fundur á flokksskrifstofunni.
Síðan hófust fyrirspurnir til ráðherra á Alþingi.
Kl.16 var afhjúpaður minnisvarði um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, kvenréttindafrömuð, á horni Þingholtsstrætis og Amtmannsstígs.
Þar sem ég er ein upphafsmanneskja þess að minnisvarðinn var reistur hlakkaði ég mikið til að vera viðstödd athöfnina.
Hér er pistill um aðdraganda þess að minnisvarðinn var reistur, en upphafið má rekja til orða sem Auður Styrkásdóttir, forstöðumaður Kvennasögusafnsins, lét falla í göngu um kvennaslóðir.
Góðar hugmyndir verða oft til á göngu eins og þetta dæmi sannar.
Minnisvarðinn er gerður af Ólöfu Nordal, listakonu og er afar fallegur og smekklegur.
Að afhjúpun lokinni fór hersingin upp í húsnæði Kvenréttindafélagsins á Hallveigarstíg, en þar flutti m.a. Auður Styrkásdóttir fyrirlestur um Bríeti.
Kl.18 hitti ég kvenfélagskonur til að taka mynd af þeim í tilefni af 40 ára afmæli félagsins á næsta ári.
Um kvöldið undirbjó ég ræðu fyrir morgundaginn því þá eru utanríkismál á dagskrá.
Samdi einnig pistilinn Hve lengi er Þórunni sætt? um pólitíska stöðu Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, í ljósi alvarlegs ágreinings hennar og Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, um framtíð svokallaðs íslensks ákvæðis í Kyótó-bókuninni.
Afstaða til þessa ákvæðis er ekkert léttmeti því hér er um stórt hagsmunamál að ræða fyrir bæði lofthjúpinn og íslenska þjóð.
Þriðjudagur 6. nóvember
Var á skrifstofunni um morguninn.
Kl.10:15-12:00 hljóp ég í skarðið í umhverfisnefnd Alþingis.
Kl.13:30-16:30 var ég í þingsal að lesa gögn og fylgjast með umræðunum.
Kl.17-18 var fundur í afmælisnefnd Kvenfélagsins á Seltjarnarnesi, en félagið er 40 ára á næsta ári.
Mánudagur 5. nóvember
Kl.8:45 fór allsherjarnefnd af stað í rútu upp í Skógarhlíðina, en þar hófst heimsókn okkar til Landhelgisgæslunnar.
Í Skógarhlíðinni tók Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, höfðinglega á móti okkur og kynnti okkur starfsemina ásamt starfsmönnum sínum, Ásgrími L. Ásgrímssyni, yfirm. VSS, Dagmari Sigurðardóttur, lögfræðingi, Árna Vésteinssyni, deildarstj. SÍ, Gylfa Geirssyni, forstöðum fjarskipta, Marvin Ingólfssyni, sprengjusérfr. og Sigurði Ásgrímssyni, sprengjusérfr.
Skoðuðum við m.a. sjómælingasviðið, stjórnstöð siglinga og útbúnað sprengjueyðingardeildar/köfunardeildar.
Síðan fórum við út í skýlið á Reykjavíkurflugvelli til að skoða flugflota Landhelgisgæslunnar og hlusta á fyrirlestra Geirþrúðar Alfreðsdóttur, flugrekstrarstjóra og Auðuns F. Kristinssonar, yfirstýrimanns og sigmanns.
Næst fórum við í kynningarflug með TF-LÍF, björgunarþyrlu gæslunnar.
Að lokum lá leiðin niður á Faxagarð um borð í varskipið Ægi.
Þar tók Kristján Þ. Jónsson, skipherra, á móti okkur og sýndi okkur skipið.
Síðan kynnti Halldór B. Nellett, framkvstj. aðgerðasviðs, nýja varðskipið sem nú er í smíðum og von er á til landsins árið 2009.
Lauk þar með mjög áhugaverðri heimsókn allsherjarnefndar Alþingis til Landhelgisgæslunnar.
Ljóst er að Landhelgisgæslan hefur eflst mikið að undanförnu, enda hafa verkefni hennar stóraukist hin seinni misseri.
Kl.13 var fundur þingflokksformanna með Sturlu Böðvarssyni, forseta Alþingis.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 voru óundirbúnar fyrirspurnir á ráðherra á Alþingi.
Spurði ég Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, út í lóðaúthlutanir sveitarfélaga í ljósi ásakana framkvæmdastjóra Samkaupa um að borgin hafi ítrekað hafnað Samkaupum um lóð undir verslun.
Kl.17 var boð á flokksskrifstofunni í tengslum við Fjármálaráðstefnun sveitarfélaga.
Sunnudagur 4. nóvember
Dagurinn fór aðallega í tiltektir heima og tölvuvinnu.
Kl.17 fórum við Hákon í Hafnarfjörðinn í 10 ára afmæli Simma.
-----------------------------7d7ea3b31036c Content-Disposition: form-data; name="imgUrl" -----------------------------7d734b2f5031e Content-Disposition: form-data; name="imgUrl" -----------------------------7d737a261300e2 Content-Disposition: form-data; name="imgUrl"