Vefur Al˛ingis Senda tˆlvupÛst til Siv Vefur FramsÛknarflokksins Ganga Ì flokkinn VefslÛir fiingm·l LÌf og starf ¡lit DagbÛkin Greinar og rÊur Pistlar Myndir

    Dagbók Sivjar Friðleifsdóttur

    Vikan 11.-17. nóvember 2007

    Laugardagur 17. nóvember

    Fyrri partur dags nýttist í Borgarnesi, í Geirabakaríi, Landnámssetrinu og fleira.

    Í Geirabakarí hitti ég forseta Alþingis, Sturlu Böðvarsson, Hallgerði Gunnarsdóttur og dóttur þeirra á leið í Stykkishólm og Ólafsvík því þau hjónin, Sturla og Hallgerður, eiga 40 ára brúðkaupsafmæli á morgun.

    Ólafsvíkurkirkja er líka 40 ára á morgun, en Sturla og Hallgerður voru fyrstu hjónin sem gefin voru saman í kirkjunni.

    Sagðist Sturla hafa unnið í byggingarvinnu við kirkjuna til að koma henni sem fyrst í gagnið.

    Kl.16:00-17:20 þýddi ég munnlega fyrir Chano Lyng, kafara og sjóliða á Triton og Ulf M. Berhtelsen, skipherra, öll ummælin sem Chano lét falla í bókinni "Útkall-Þyrluna strax!" sem var að koma út.

    Í bókinni er sagt frá því þegar TF-LÍF bjargar Chano og 6 félögum hans á ævintýralegan hátt úr sjávarháska í fyrra þegar Wilson Muuga strandaði, en einn félaginn lést í höndum hans í slysinu.

    Þar sem Chano og Ulf skilja ekki íslensku hef ég þýtt fyrir þá kaflana sem þeim eru mikilvægir í bókinni.

    Það var mjög sérstök tilfinning sem fylgdi því að þýða kaflana fyrir þá og finna þá endurupplifa atburðinn.

    Kl.19 fórum við Steini á hátíðarkvöld framsóknarmanna í Mosfellsbæ þar sem Þröstur Karlsson, fyrrum oddviti og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, var heiðraður.

    Kvöldinu lauk á því að við Hildur systir kíktum í bæinn.

    Föstudagur 16. nóvember

    Fyrri partur dags fór í gagnavinnu.

    Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness í félagsheimili Seltjarnarness.

    Kl.16 heimsóttu Ulf M. Berthelsen, skipherra á danska varðskipinu Triton og Chano Lyng, kafari og sjóliði á Triton, Landhelgisgæsluna í flugskýli gæslunnar á Reykjavíkurflugvelli.

    Þeir eru hér á Íslandi í tilefni af útkomu bókarinnar "Útkall-Þyrluna strax!" sem Óttar Sveinsson gefur út.

    Í bókinni er því lýst þegar TF-LÍF bjargaði sjö sjóliðum af Triton, þar á meðal Chano Lyng, aðfararnótt 19. desember sl. þegar flutningaskipið Wilson Muuga strandaði rétt sunnan við Sandgerði.

    Einn danskur sjóliði fórst í þessum atburði.

    Landhelgisgæslan vann mikið afrek við afar erfiðar aðstæður þessa nótt, en atburðinu er lýst á greinagóðan hátt í bókinni.

    Sjóliðarnir voru í tæpa tvo tíma í 2 gráðu köldum sjó, í 8 metra ölduhæð, að berjast saman fyrir lífi sínu þar sem öldurnar færðu þá marga metra í kaf í hvert skipti sem þær riðu yfir.

    Bókin "Útkall-Þyrluna strax!" lætur engan sem hana les ósnortinn.

    Eftir lestur hennar þakkar maður almættinu fyrir að hafa aldrei lent í neinu sem líkst getur þeim aðstæðum sem sjóliðarnir ungu, áhöfnin á Triton og þyrlusveitin á TF-LÍF, lenti í þessa örlagaríku nótt.

    Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar og starfsmenn gæslunnar tóku mjög vel á móti Ulf og Chano og rifjuðu upp atburðinn með þeim sem og annað samstarf gæslunnar og danska flotans.

    Hér er tengill á frétt af lhg.is.

    Kvöldinu varði ég með Óttari, Hálfdáni, Ulf og Chano.

    Fimmtudagur 15. nóvember

    Kl.10:30-12:30 var ég í þinginu og tók þátt í umræðum um skýrslu Umboðsmanns Alþingis á þinginu.

    Fór síðan að sinna erindum áður en leiðin lá aftur á Alþingi.

    Tók þá þátt í umræðum um heilbrigðsmál.

    Kl.17 leit ég við á flokksskrifstofunni inn á fund stjórnar Kjördæmissambands framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi.

    Síðan heilsaði ég upp á tvo erlenda vini sem eru hér á landi um þessar mundir.

    Var komin heim um kl.19:30.

    Miðvikudagur 14. nóvember

    Kl.8:30 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.

    Kl.12:15 var rótarýfundur á Hótel Sögu.

    Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á fyrirspurnum til ráðherra.

    Ég var með 3 fyrirspurnir í dag.

    Fyrstu tvær voru til umhverfisráðherra, Þórunnar Sveinbjarnardóttur.

    Sú fyrri var: Er bráðlega að vænta niðurstöðu verkefnis sem felur í sér kortlagningu vega og slóða á hálendinu og ákvörðunar um hvaða vegi og slóða sé heimilt að aka?

    Sú seinni var: Hvenær má vænta aðgerða sem hafa það að markmiði að auka ábyrgð þeirra sem dreifa fjölpósti á kostnaði við söfnun og förgun úrgangs hans?

    Síðan var ég með eina fyrirspurn til samgönguráðherra, Kristjáns Möller, sem hljóðaði svona: Telur ráðherra æskilegt að setja hluta Hafnarfjarðarvegar í stokk?

    Svörin sem ég fékk voru svona og svona.

    Hvað varðar kortlagningu vega og slóða á hálendinu er að mínu mati hægt að flýta því þjóðþrifamáli um allt að helming með því að styðja betur við bakið á Landmælingum.

    Þá væri unnt að komast hraðar yfir í samstarfi Landmælinga og Ferðaklúbbsins 4x4, en nú er í gildi skynsamur samingur milli þessara aðila um að GPS-mæla vegi og slóða á miðhálendinu.

    Jón G. Snæland, einn af forystumönnum Ferðaklúbbsins 4x4, er afar öflugur í því samstarfi.

    Hann er kallaður Slóðríkur af skiljanlegum ástæðum því líklega þekkir enginn annar Íslendingur vegi og slóða á miðhálendinu betur en hann.

    Með viðbótarstuðningi við Landmælingar væri hægt að klára kortlagninguna  á næstu misserum.

    Þá tæki við mikið, og að sumu leyti þungt ferli þar, sem sveitarfélög og aðrir hagsmunaaðilar myndu ákveða hvaða vegir og slóðar ættu að vera opnir og lokaðir á miðhálendinu og hvenær.

    Hvað varðar fjölpóstinn fékk ég betri svör því ráðherra er að setja af stað nefnd til að skoða það mál sérstaklega.

    Á síðustu 3 árum hefur fjölpóstur, sem veltur inn um lúguna hjá fólki, aukist um 76%.

    Samgönguráðherra gaf lítil svör um framtíð Hafnarfjarðarvegarins í gegnum Garðabæ, en sá vegur verður 6 akreina.

    Hinsvegar var Gunnar Svavarsson, Samfylkingarmaður og formaður fjárlaganefndar, öllu brattari og gaf væntingar um að vegurinn yrði settur í stokk.

    Yfirlýsing Gunnars er mikilvæg því formaður fjárlaganefndar getur haft veruleg áhrif á fjárlögin taki hann á sig rögg og beiti sér.

    Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.

    Kl.18:00-19:30 var fundur formanna þingflokka ásamt þingforseta, Sturlu Böðvarssyni.

    Kl.20-22 var ég í Snyrtiskólanum í Kópavogi með konum í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi.

    Þriðjudagur 13. nóvember

    Í dag birtist grein undir nafninu Húsakostur fangelsa eftir mig í dagblaðinu 24 stundum.

    Í henni er fjallað um brýna þörf á að hefja framkvæmdir við viðbyggingar á Litla-Hrauni sem og við Hólmsheiðarfangelsið, nýtt fangelsi á höfuðborgarsvæðinu.

    Fyrir hádegi fór tíminn í lestur gagna fyrir umræðun á Alþingi í dag og tölvuvinnslu.

    Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum utan dagskrár um jarðakaup.

    Síðan tók ég þátt í umræðum um frumvarp dómsmálaráðherra til nýrra laga um almannavarnir.

    Kl.15 var gerð útför Garðars Steinarssonar, flugstjóra, frá Neskirkju.

    Síðan lá leiðin aftur í þingið, en þar mælti ég fyrir frumvarpi til stjórnarskipunarlaga um að ráðherra geti ekki verið þingmaður samhliða ráðherradómi.

    Var komin heim af Alþingi um kl.19. 

    Um kvöldið sá ég skrýtna frétt á Stöð 2 þar sem fjallað var um umræðu dagsins á Alþingi af frumvarpi um almannavarnir.

    Af fréttinni fannst mér að skilja mætti að ég væri neikvæð út í þau auknu völd og verkefni sem Ríkislögreglustjóra verða falin samkvæmt frumvarpinu.

    Sagt var í fréttinni að ég hefði gert athugasemd við þau auknu völd.

    Svo er ekki.

    Ég tiltók einmitt í ræðu minni að þótt þau verkefni og völd væru mjög mikil, teldi ég rétt og mikilvægt að í hættuástandi væri stuðst við sterka og miðlæga stjórn.

    Fagnaði ég einnig að við hefðum, á síðasta kjörtímabili, styrkt verulega embætti Ríkislögreglustjóra þ.a. embættið væri nú í stakk búið til að taka við mikilvægum verkefnum.

    Jæja, svona eru miðlarnir.

    Þeir geta, hvort sem það er óvart eða viljandi, gefið ranga mynd af umræðum á Alþingi einungis með því hvernig þeir klippa fréttirnar til.

    Mánudagur 12. nóvember

    Kl.9 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.

    Kl.11 fór þingflokkur framsóknarmanna í heimsókn í Háskólann í Reykjavík til að kynna sér starfsemi skólans.

    Kl.13 var fundur þingflokksformanna ásamt forseta Alþingis.

    Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.

    Kl.15 hófst fundur á Alþingi á því að Steingrímur J. Sigfússon kvaddi sér hljóðs um störf þingsins og ræddi um misvísandi yfirlýsingar forsætisráðherra, Geirs H. Haarde og iðnaðarráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, um hvað ákvörðun Landsvirkjunar, um að taka sölu á orku til netþjónabús og kíslihreinsunar fram yfir álver á Suður- og Vesturlandi, þýddi í raun.

    Tókum við Guðni Ágústsson þátt í umræðunum fyrir hönd framsóknarmanna.

    Í bloggi skrifar Össur að ákvörðunin þýði "Það verða einfaldlega engum nýjum álverum seld orka" og "Ríkisstjórnin er einfaldlega að hverfa frá blindri stóriðjustefnu Framsóknarflokksins , en styður í staðinn af alefli byggingu hátæknifyrirtækja eins og kísilhlutaframleiðslu og netþjónabúa í stað hefðbundinnar stóriðju".

    Þar sem Össur hraunar yfir allt og alla á bloggi sínu og sakar framsóknarmenn um blinda stóriðjustefnu ákvað ég að rifja upp atkvæðagreiðsluna um Kárahjúkavirkjun á 127. þingi, en þá studdu allir þingmenn Samfylkingarinnar, sem atkvæði greiddu, virkjunina, að tveimur undanskildum sem voru á móti.

    Þá féllu atkvæði þ.a. 44 þingmenn samþykktu virkjunina, 9 voru á móti(Árni Steinar Jóhannsson, Jón Bjarnason, Kolbrún Halldórsdóttir, Rannveig Guðmundsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Sverrir Hermannsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Þuríður Backman og Ögmundur Jónasson), 2 sátu hjá(Guðjón A. Kirstjánsson og Katrín Fjeldsted), 1 var í leyfi(Ólafur Örn Haraldsson) og 7 voru fjarstaddir(Ásta R. Jóhannesdóttir, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Guðmundur Árni Stefánsson, Gunnar Birgisson, Lára Margrét Ragnarsdóttir og Sigríður Jóhannesdóttir).

    12 Samfylkingarþingmenn samþykktu Kárahnjúkavirkjun og alls 44 þingmenn þ.a. breið pólitíks samstaða náðist um málið og því alls engin blind stóriðjustefna framsóknarmanna þar í gangi.

    Hér er frétt af umræðunum á ruv.is.

    Kl.15:30 var fundur í utanríkismálanefnd Alþingis.

    Kl.16 var aftur fundur þingflokksformanna ásamt forseta Alþingis.

    Að honum loknum tók ég þátt í umræðum um réttindi samkynheigðra, en ég er einn fluttningsmanna frumvarps um að ein hjúskaparlög gildi í landinu, þ.e. að sömu hjúskaparlögin gildi fyrir samkynhneigða og gagnkynhneigða.

    Í stefnu Framsóknarflokksins segir að ekki skuli mismuna fólki á grundvelli m.a. kynhneigðar.

    Kl.19 lauk umræðunni.

    Um kvöldið fór ég ásamt Húnboga og Hákoni á Kaffi París að borða kvöldmat.

    Sunnudagur 11. nóvember

    Var í tiltektum, lestri gagna og tölvuvinnslu mestan hluta dagsins.

    Kl.14:30-17:00 hitti ég vinkonur mínar, þær Heiði, Önnu og Hróðnýju.

    Um kvöldið borðuðum við fjölskyldan ofnbakaða gæs, brúnaðar kartöflu og waldorfsalat.

    -----------------------------7d730d2d700d8 Content-Disposition: form-data; name="imgUrl"

    prentvæn útgáfa



    Fyrri síða   
    Næsta síða
    Vikan 27.júní-3.júlí 2009
    Vikan 20.-26. júní 2009
    Vikan 13.-19. júní 2009
    Vikan 6.-12. júní 2009
    Vikan 30. mai-5. júní 2009
    Vikan 23.-29. mai 2009
    Vikan 16.-22. mai 2009
    Vikan 9.-15. mai 2009
    Vikan 2.-8. mai 2009
    Vilkan 25.apríl-1.mai 2009
    Vikan 18.-24. apríl 2009
    Vikan 11.-17. apríl 2009
    Vikan 4.-10. apríl 2009
    Vikan 28.mars-3. apríl 2008
    Vikan 21.-27 febrúar 2009
    Vikan 14.-20. febrúar 2009
    Vikan 7.-13. mars 2009
    Vikan 28.febrúar-6.mars 2009
    Vikan 21.-27. febrúar 2009
    Vikan 14.-20. febrúar 2009
    Vikan 7.-13. febrúar 2009
    Vikan 31. jan.-6. feb. 2008
    Vikan 24.-30. janúar 2009
    Vikan 17.-23. janúar 2008
    Vikan 10.-16. janúar 2008
    Vikan 3.-9. janúar 2008
    Vikan 27. desember 2008 -2. janúar 2009
    Vikan 20.-26. desember 2008
    Vikan 13.-19. desember 2008
    Vikan 6.-12. desember 2008
    Vikan 29. nóv.-5. des. 2008
    Vikan 22.-28. nóvember 2008
    Vikan 15.-21. nóvember 2008
    Vikan 8.-14. nóvember 2008
    Vikan 1.-7. nóvember 2008
    Vikan 25.-31. október 2008
    Vikan 18.-24. október 2008
    Vikan 11.-17. október 2008
    Vikan 4.-10. október 2008
    Vikan 27.sept.-3.okt. 2008
    Vikan 20.-26. september 2008
    Vikan 13.-19. september 2008
    Vikan 6.-12. september 2008
    Vikan 30. ágúst-5. september 2008
    Vikan 23.-29. ágúst 2008
    Vikan 16.-22. ágúst 2008
    Vikan 9.-15. ágúst 2008
    Vikan 02.-08. ágúst 2008
    Vikan 26.júlí-1.ágúst 2008
    Vikan 19.-25. júlí 2008