Laugardagur 1. desember
Vann í tölvunni fram eftir degi við að ganga frá powerpoint sýningu fyrir Sigurgeir Sigmundsson, mág minn.
Kl.18 hófst stórskemmtilegt fertugsafmæli Sigurgeirs þar sem borðin svignuðu undan kræsingunum.
Fjöldi gesta mætti til að samfagna Sigurgeiri í tilefni tímamótanna.
Haldnar voru skemmtilegar ræður honum til heiðurs, sýnd dogmamynd sem Ingunn útbjó og dansað fram eftir nóttu.
Á meðan á afmælinu stóð rúllað myndasýningin sem ég hafði útbúið með 254 fyndnum myndum úr lífi afmælisbarnsins, en inn á þær hafði ég sett hugsana- og talbólur með léttum texta.
Föstudagur 30. nóvember
Kl.9:30 lá leiðin í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Kl.10:30 fór ég á Alþingi en þar var að hefjast 2. umræða um fjárlagafrumvarpið.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem við tókum inn nýjan félaga, Svönu Helen Björnsdóttur, rafmagnsverkfræðing.
Var síðan í ýmsum verkefnum, tölvuvinnslu og fleiru fram eftir degi.
Kl.17 hitti ég vinkonur mínar þær Heiði, Hróðnýju og Önnu Hrönn í Vesturbæjarsundlauginni.
Ætluðum við að vera í bústað á Laugarvatni í nótt en vegna veðurs ákváðum við að vera í bænum.
Eftir sundlaugarferðina fórum við í mat heim til Önnu Hrannar.
Fimmtudagur 29. nóvember
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um breytingar á þingsköpum.
Allir flokkar nema vinstri-grænir styðja breytingarnar.
Skömmu síðar hófst 2. umræða um fjárlagafrumvarpið.
Kl.18 var síðan atkvæðagreiðsla á Alþingi til að nýjar breytingartillögur kæmust með afbrigðum á dagskrá.
Skrapp til tengdó um kvöldmatarleytið.
Kl.20-22 var skemmtilegur aðalfundur Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur haldinn á Hótel Loftleiðum.
Miðvikudagur 28. nóvember
Kl.8:30-10:00 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Kl.10:15 hófst fundur í utanríkismálanefnd Alþingis í utanríkisráðuneytinu.
Kl.12 var fundur á nefndarsviðinu þar sem Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra og nokkrir sérfræðingar buðu upp á kynningu á stöðu mála vegna Kyótó-bókunarinnar.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi þar sem teknar voru fyrir fyrirspurnir til ráðherra.
Kl.15:30 fór fram utandagskrárumræða um málefni Rúv að frumkvæði Kolbrúnar Halldórsdóttur, en við Guðni Ágústsson tókum þátt í umræðunum fyrir hönd flokksins.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Skrapp síðan í matvöruverslun og heim.
Kl.20-22 var formannafundur framsóknarfélaganna í Suðvesturkjördæmi haldinn í aðstöðu flokksins að Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Á fundinn mættu líka sveitastjórnarmenn og fulltrúar okkar í nefndum sveitarfélaga til að ræða um íbúafjölgun á höfuðborgarsvæðinu, vegamál, almenningssamgöngur og fleira.
Þriðjudagur 27. nóvember
Kl.9:30 var fundur fulltrúa í utanríkisnefnd ásamt Karli Eikenberry, varaformanni hermálanefndar Nató, á Alþingi.
Kl.13 var fundur þingflokksformanna og Sturlu Böðvarssonar, forseta Alþingis.
Kl.13:30 hófst síðan fundur á Alþingi þar sem við ræddum fyrst um lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna og síðan fíkniefnavandann.
Seinni partinn komst þingsályktunartillaga mín og fleiri um verkefni til að auka hlut kvenna í sveitastjórnum á dagskár aftur í þinginu en umræðum var frestað um daginn þar sem svo margir vildu taka til máls í málinu.
Um kvöldið vann ég í tölvunni vel fram yfir miðnætti.
Það er með ólíkindum hve tíminn líður hratt þegar maður er að vinna í tölvunni á kvöldin.
Mánudagur 26. nóvember
Ók Simma í skólann í morgunsárið.
Kl.12:00-13.30 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Kl.13:30 var fundur í þingflokki framsóknarmanna á Alþingi.
Skrapp síðan í Mál og menningu að kaupa bókina "Guðni af lífi og sál" .
Hlakka ég mjög til að lesa hana til að sjá hvort við höfum sömu sýn á þá atburði sem við bæði höfum upplifað sameiginlega í störfum okkar.
Kl.16 var fundur þingflokksformanna ásamt Sturlu Böðvarssyni, forseta Alþingis.
Um kvöldið vann ég í tölvunni.
Sunnudagur 25. nóvember
Dagurinn fór í lestur gagna fyrir komandi þingviku og í heimilisstúss með næturgestunum Simma, Lenu Maríu og Emil Erni.
Krakkarnir fóru heim seinnipart dags því Árni bróðir var upptekinn fram eftir degi við að láta kjósa sig í stjórn Stangveiðifélags Reykjavíkur á aðalfundi félagsins.
Um kvöldið fór ég í Hafnarfjörðinn með Simma.