Laugardagur 8.desember
Dagurinn fór að mestu í að skera laufabrauð með fjölskyldunni.
Mættum við til Hildar systur og skárum fullt af laufabrauðskökum, steiktum þær síðan, borðuðum saman hangikjöt og röbbuðum málin fram eftir kvöldi.
Laufabrauðsgerðin er fjölskylduhefð sem gaman er að viðhalda.
Föstudagur 7. desember
Kl.8:30 hófst fundur í allsherjarnefnd Alþingis þar sem við ræddum frumvarp til þingskaparlaga.
Kl.10:30 hófust umræður á Alþingi þar sem við Höskuldur Þórhallsson tókum þátt í umræðum, að hans frumvkæði, um PISA könnunina sem sýnir afturför í menntamálum þjóðarinnar.
Síðan var umræða utan dagskrár um yfirlýsingu málnefndar sem við Jón Björn Hákonarson tókum þátt í.
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Var síðan í útréttingum og þinginu.
Fór úr þinginu laust eftir kl.17.
Kl.20 var skemmtilegt kvennaboð heima hjá Hildi systur í tilefni jólanna.
Ræddum við kerlurnar saman um bestu jólabækurnar, verð á matvörum í Bónus og Krónunni, fall á hlutabréfamarkaði, hvort rétt sé að hráu laufabrauðin frá Kristjánsbakaríi og Ömmubakstri séu bökuð í sömu verksmiðjunni í Lettlandi og önnur dægurmál dagsins.
Fimmtudagur 6. desember
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Þar ræddum við m.a. um sölu eigna á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Kl.14:30 var fundur þingflokksformanna ásamt forseta Alþingis.
Kl.17:30 skrapp ég heim úr þinginu.
Kl.18:40 hófst atkvæðagreiðsla á Alþingi sem stóð í um 40 mínútur.
Að henni lokinni hófst fundur í efnahags- og skattanefnd Alþingis, sem stóð til kl.21.
Um kvöldið vann ég í tölvunni.
Miðvikudagur 5.desember
Fyrir hádegi nýttist tíminn í tölvuvinnu.
Kl.11:30 mættu þingmenn og starfsmenn Alþingis á Hótel Borg til að borða saman jólamat, þ.e. hangikjöt, möndlugraut og allt tilheyrandi.
Kl.13:30 hófust fyrirspurnir til ráðherra á Alþingi.
Ég var með tvær fyrirspurnir, annarsvegar til forsætisráðherra um störf nefndar sem hefur það hlutverk að endurskoða stjórnarskrána og hinsvegar til umhverfisráðherra um samningsumboð Íslands í samningum um Kyótó-bókunina.
Kl.16-18 var fundur þingflokks framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.19 hófst glæsileg fimmtugsafmælisveisla vinar okkar, Stefáns S. Guðjónssonar, framkvæmdastjóra og aðalræðismanns Bangaldesh, í Iðnó.
Þriðjudagur 4. desember
Kl.9 hófst fundur nokkurra fulltrúa Norðurlandaráðs og Eystrasaltsráðsins.
Á fundinum ræddum við um samstarfssamning ráðanna fyrir komandi starfsár 2008.
Eftir að við höfðum gert nokkrar breytingar á honum var samningurinn undirritaður af forseta Norðurlandaráðs og forseta Eystrasaltsráðsins, Dagfinn Höybraten og Eriku Zommere.
Á fundinum ræddum við einnig cyber crimes(IT-attacks) eða internet-glæpi.
Í vor varð uppi fótur og fit í Rússlandi, í kjölfar ákvörðunar stjórnvalda í Eistlandi, um að færa til minningarstyttu í Tallin.
Rússar töldu að sér væri sýnd lítilsvirðing með ákvörðuninni.
Í kjölfarið gerðu, að sögn Eistanna, Rússar, internet árásir á Eistland sem stóðu yfir í margar vikur.
Heimasíður stjórnvalda í Eistlandi voru blokkeraðar og slegnar út, starsemi tveggja stórra banka, Hansapank og SEB Eesti Uhisbank var lömuð vegna árásanna í nokkurn tíma þ.a. viðskiptavinir bankanna gátu t.d.ekki borgað vörur og þjónustu við kassa verslana og veitingastaða með kortum sínum.
Einnig var ráðist á símaþjónustu sem sér m.a. um björgunarþjónustu landsins.
Þar sem Eistland er í Nató var Nató gert viðvart vegna alvarleika málsins og er nú verið að rannsaka árásirnar og hvernig bregðast megi við slíkum árásum í framtíðinn.
Í gær var kynnt í fjölmiðlum í Noregi að Norðmenn hafa komið á fót fyrstu internet-lögreglustöð sinnar tegundar í heiminum.
Mun internet-lögreglan aðallega einbeita sér að barnaníðingum fyrsta kastið.
Á komandi ári munu Norðurlandaráðið og Eystrasaltsráðið ræða enn frekar um internet-glæpi og ráð gegn þeim.
Kl.17:45 var flug til Köben og þaðan til Íslands.
Var kominn heim án nesið rétt fyrir miðnætti.
Í dag birtist grein um heilbrigðismál eftir mig í 24 stundir.
Mánudagur 3. desember
Kl.7:35 var flug til Ólsóar.
Um kvöldið var vinnukvöldverður fulltrúa Norðurlandaráðs og Eystrasaltsráðsins.
Sunnudagur 2. desember
Dagurinn fór í tiltektir og tölvuvinnu.
Seinni partinn samdi ég pistil fyrir blaðið 24 stundir sem birtist líklega í blaðinu í næstu viku.
Kl.17:30 lá leiðin með Simma til Sigurgeirs og Ingunnar systur í Hafnarfjörðinn þar sem boðið var upp á restar síðan í fertugsafmæli Sigugeirs í gær.
Um kvöldið pakkaði ég niður í tösku því á morgun fer ég til Óslóar að sækja fund Eystrasaltsráðsins og Norðurlandaráðs.