Laugardagur 12. janúar
Kl.11 var morgunkaffifundur framsóknarmanna á Digranesveginum í Kópavogi.
Á fundinum var rætt um það helsta sem er á baugi í stjórnmálunum í dag.
Fór um miðjan daginn í góða stafagöngu í Heiðmörk með mömmu og Ingunni systur.
Meirihluti bæjarstjórnar á Seltjarnarnesi er um þessar mundir að ganga frá tillögu að auglýsingu fyrir nýtt deiliskipulag á Byggarðasvæðinu, svæðinu norðan við Nesstofu, rétt austan Gróttu.
Stjórn bæjarins fól Þyrpingu h.f. að gera tillöguna.
Tillagan er afar vond því í henni er gert ráð fyrir að í stað þeirra bygginga sem fyrir eru á svæðinu verði byggðar stórar byggingar með yfir 180 íbúðum fyrir um 600 manns á einu fallegasta og viðkvæmasta svæðinu á Seltjarnarnesi, þ.e. á Vestursvæðinu.
Einnig er mannvirkjasvæðið aukið talsvert í tillögunni.
Íbúafjöldinn á nesinu myndi aukast um 10% gangi áform Sjálfstæðismanna eftir þ.a. hér er um umfangsmikla byggð að ræða.
Sú staða sem þetta mál er komið í er furðuleg séð í því ljósi að áður hafa Seltirningar þurft að berjast gegn mannvirkjahugmyndum Sjálfstæðismanna á Vestursvæðinu.
Er ekki komið nóg? Er ekki hægt að láta staðar numið og leyfa þessu fallega útvistarsvæði að halda yfirbragði sínu? Er ekki hægt að leyfa sér að vernda þá víðsýni sem nú er í kringum Gróttu og Nesstofu? Þarf að skyggja á þessa náttúruperlu Seltjarnarness sem við erum svo stolt af? Er bærinn á heljarþröm fjárhagslega þ.a. við þurfum að fórna lágreistri byggð? Hvað er meirihluti bæjarstjórnar að fara?
Verð ég að viðurkenna að eftir að hafa staðið í baráttu fyrir verndun svæðisins sunnan Nesstofu á sínum tíma sem bæjarfulltrúi átti ég ekki von á því að vígstaðan færðist á svæðið norðan Nesstofu nokkrum árum seinna.
Þá, eins og nú, var allt klofið hjá Sjálfstæðismönnum.
Nú margklofnaði mannvirkja- og skipulagsnefnd við frágang málsins.
Fulltrúi minnihlutans, Neslistans lagðist gegn tillögunni og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins voru klofnir, bæði með og á móti.
Hér er frétt af visir.is um málið og af mbl.is.
Hér er sjónvarpsfrétt Stöðvar 2 um málið.
Hér er skrifleg frétt af ruv.is um málið og frétt úr ruv-sjónvarpi.
Föstudagur 11. janúar
Kl.10 hófst ráðstefna um innflytjendamál í Borgartúninu.
Kl.12:15-13:30 var fundur í rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Kl.15 var athöfn á Alþingi til heiðurs heiðurslistamönnum okkar, en þeir eru 28 talsins.
Kl.17 var fundur í heimahúsi.
Síðustu daga hefur verið mikið fjör í samfélaginu ef þannig má að orði komast og þar af leiðandi í fjölmiðlunum.
Harkalegar deilur hafa spunnist um mannaráðningar Össurar Skarphéðinssonar og Árna M. Mathiesen, kjarasamningar eru í uppnámi, mikill óróleiki er á hlutabréfamarkaðnum, mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna álítur að kvótakerfið sé gallað og greiðslukortafyrirtæki eru talin hafa stundað samráð á markaði svo fátt eitt sé nefnt.
Miðað við allan gauraganginn sem bylgjast um samfélagið okkar um þessar mundir má búast við því að störf Alþingis, sem hefjast af krafti í næstu viku, verði mun líflegri en á hinu nýliðna daufa haustþingi.
Ég spái því að það verði meira líf í tuskunum á vorþinginu.
Fimmtudagur 10. janúar
Hluti dags fór í gagnavinnu og rabb við flokksmenn.
Var á skrifstofunni í þinginu og í útréttingum í bænum.
Kvöldið fór í sjálfboðavinnu með Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar(SÍH), en félagið er að koma sér upp stærri félagsaðstöðu við skotvöllinn.
Miðvikudagur 9. janúar
Fyrri part dags vann ég í gögnum.
Í hádeginu var vinnufundur.
Seinni partur dags fór í að vinna í kjördæmamálum.
Kl.17:00-18:45 var fundur á flokksskrifstofunni.
Þriðjudagur 8. janúar
Í dag birtist grein mín "Landspítali á ís" í blaðinu 24 stundir.
Um miðja daginn hitti ég flokksfélaga úr kjördæminu til að fara yfir stjórnmálaviðhorfið og ræða um opinn fund sem verður í kjördæminu bráðlega.
Seinni part dags skrapp ég í klippingu og aðrar útréttingar.
Á heimleiðinni leit ég inn til tengdó í te.
Mánudagur 7. janúar
Fyrri partur dags fór í að klára grein fyrir dagblaðið 24 stundir.
Í hádeginu borðaði ég með flokksfélaga.
Seinni part dags fór ég m.a. á flokksskrifstofuna til að fara yfir nokkur mál með starfsmönnum þar.
Einnig fór ég um borð í danska varðskipið Vædderen í Reykjavíkurhöfn að hitta vin min Ulf M. Berthelsen, skipherra.
Áhöfnin um borð er reyndar áhöfn danska varðskipsins Triton, en það skip er nú í klössun í Danmörku.
Við Ulf skipulögðum nokkurskonar samkomu sem verður um næstu helgi um borð í matsalnum þegar skipið kemur aftur inn í Reykjavíkurhöfn.
Á þeirri samkomu mun ég hitta áhöfnina og þýða munnlega á staðnum fyrir hana helstu atriðin sem koma fyrir í bók Óttars Sveinssonar "Útkall-þyrluna strax!".
Bókin fjallar um slysið sem átti sér stað 19.desember 2006 þegar Wilson Muuga strandaði og einn skipverja Triton fórst, en 7 skipverjum var bjargað upp í TF-LÍF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, eftir að þeir höfðu velkst um í köldum sjónum við hrikalegar aðstæður í 2 tíma.
Eftir að ég er búin að lesa helstu atriði bókarinnar munum við sýna áhöfninni Kastljósþáttinn sem sýndur var í nóvember í lok síðasta árs.
Í þeim þætti lýsa Ulf,skipherra, og Chano Lyng, sjóliðinn sem reyndi að halda lífi í vini sínum sem lést, því hvernig atburðurinn var frá þeirra sjónarhorni.
Ég hlakka til að lesa fyrir strákana um borð um næstu helgi en margir þeirra voru á Triton slysanóttina hörmulegu og 3 þeirra sem nú eru um borð, Chano, Anders og Niclas, voru í hópi þeirra sem bjargað var í þyrluna.
Sunnudagur 6. janúar
Dagurinn nýttist að mestu í ferðalag um Reykjanesskagann með vini mínum Ulf M. Berthelsen.
Fyrst lá leiðin meðfram Kleifarvatni að Krýsuvík.
Þaðan niður á Selatanga, í gegnum Grindavík, að Reykjanestá og síðan í Hafnarfjörðinn í kaffi til Ingunnar systur og fjölskyldu.
-----------------------------7d81c51b30586 Content-Disposition: form-data; name="imgUrl"