Föstudagur 18. janúarKl.11:30 mætti allsherjarnefnd Alþingis í heimsókn á Litla-Hraun.
Skoðuðum við húsakynnin, hittum fanga og starfsfólk og fengum góðar upplýsingar um starfsemina.
Kl.14:30 vorum við Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, í upptöku hjá Sigmundi Erni í þættinum "Á mannamáli" sem sýndur verður n.k. sunnudagskvöld.
Kl.17:30 komu gestir til okkar Steina í fordrykk.
Kl.19:30 fórum við í glæsilegt þorrablót framsóknarmanna í Kópavogi.
Vel var mætt að venju og fengu allir sér vel af staðgóðum þorramatnum.
Birkir J. Jónsson, alþingismaður og Samúel Örn Erlingsson, varaþingmaður, voru ræðumenn kvöldsins, en veislustjóri var Marteinn Magnússon, bæjarfulltrúi okkar í Mosfellsbæ.
Að borðhaldi loknu spilaði hljómsveitin Klassík fyrir dansi.
Fimmtudagur 17. janúar
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi með óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Spurði ég Bjórn Bjarnason, dómsmálaráðherra, að uppbyggingu fangelsa á Litla-Hrauni og Hólmsheiði og um nýjar höfuðstöðvar lögreglunnar.
Lýsti hann því að lóðamál á Hólmsheiði þar sem ráðgert var að reisa nýtt fangelsi væru í uppnámi og hefði það komið dómsmálaráðuneytinu í opna skjöldu.
Vildi hann nú skoða hvort hægt væri að reisa nýtt fangelsi og nýjar höfuðstöðvar lögreglunnar á sama stað.
Fangelsishlutinn yrði þá líklega minni en áður hefur verið rætt um, en á móti yrði Litla-Hraun stækkað frekar en nú er áformað.
Að mínu mati er brýnt að bæta úr húsakosti fangelsa.
Núverandi staða, s.s. í Kvennafangelsinu í Kópavogi og í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg, sem er rekið á undanþágu frá Heilbrigðiseftirliti borgarinnar, er ekki ásættanleg.
Að fyrirspurnum loknum ræddum við frumvarp um Varnarmálastofnun þar sem ég tók þátt fyrir hönd flokksins.
Kl.16 heimsóttu mig á Alþingi þær Eva Indriðadóttir og Unnur Tryggvadóttir Flóvenz því þær eru að gera stjórnmálaverkefni um Framsóknarflokkinn.
Kl.17:00-19:10 var fundur í Íbúasamtökum um lágreista byggð í Bygggörðum austan Gróttu á Seltjarnarnesi.
Um kvöldið fylgdumst við fjölskyldan með leik Íslands og Svía í Evrópukeppninni í handbolta.
Miðvikudagur 16. janúar
Kl.8:30 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Kl.12:45 var fundur þingflokksformanna með þingforseta.
Kl.13:30 hófst umræða um störf þingsins þar sem ég spurði þingflokksformann Samfylkingarinnar, Lúðvík Bergvinsson, út í framgöngu Árna Mathiesen, setts dómsmálaráðherra, hvað varðar skipun héraðsdómara og mál Lúðvíks um skipan hæstaréttadómara sem er til vinnslu í allsherjarnefnd.
Sagðist Lúðvík ekki vera sammála Árna Mathiesen hvað varðar skipunina eins og fram kom í fréttum í bæði rúv-sjónvarpi síðar um kvöldið og á Stöð 2.
Kl.17 var mætti ég ásamt öðrum í Íbúasamtökum sem vilja lágreista byggð í Bygggörðum austan Gróttu, á bæjarskrifstofu Seltjarnarness til að fylgjast með bæjarstjórnarfundi.
Á fundinum hættu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins við að senda þá vondu tillögu sem skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkti fyrir stuttu út til auglýsingar.
Tillagan gerði ráð fyrir 30% aukningu á byggingarsvæði og allt of háum blokkum og mikils byggingarmassa(nýtingarhlutfall 0,8) á þessu fallega náttúru- og útivistarsvæði á sama tíma og gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir byggð í samræmi við þá sem fyrir er(nýtingarhlutfall 0,3).
Minnihluti bæjarstjórnar, Neslistinn og Íbúasamtökin hafa því náð áfangasigri í málinu þótt að það sé langt frá því að vera í höfn.
Kl.19 mætti ég í smink á rúv-sjónvarpi, en stuttu síðar vorum við Birgir Ármannsson hjá Brynju Þorgeirsdóttur í Kastljósinu.
Í Kastljósinu ræddum við nýlega skipan Árna Mathiesen, setts dómsmálaráðherra, í stöðu héraðsdómara og þá dæmalausu ósvífni sem ráðherrann sýndi dómnefndinni sem mat hæfi umsækjenda í viðtali í Kastljósinu í gær.
Í gær sagði Árni að dómnefndin rýrði traust almennings á dómsvaldinu en ekki skipun hans í stöðuna og að dómnefndin kynni ekki reglurnar sem hún starfaði eftir.
Kl.20:30 fylgdist ég með Hákoni og félögum hans í Gróttu keppa við Fylki í handbolta í íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi.
Þriðjudagur 15. janúar
Kl.9:30 var morgunkaffifundur Jöklarannsóknarfélags Íslands(JÖRFÍ) í Húsasmiðjunni.
Kl.11 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Að þeim loknum var 2. umræða um jafnréttisfrumvarpið svokallaða og tók ég þátt í umræðunum fyrir hönd flokksins.
Kl.20 var stofnfundur Ferða- og útivistarfélagsins Slóðavina(FÚS) á Hótel Loftleiðum.
Félagið stefnir að því að halda utanum þá sem vilja ferðast um á mótorhjólum og fjórhjólum á vegslóðum á há- og láglendi.
Mæting var geysigóð, en um 150 manns mættu á stofnfundinn.
Jakob Þór Guðbjartsson var kosinn formaður félagsins.
Í tíufréttum rúv-sjónvarps kom fram að bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi hafa frestað afgreiðslu á auglýsingu að deiliskipulagi í Bygggörðum, austan Gróttu.
Mótmæli íbúa hafa hrakið bæjaryfirvöld frá því skipulagsklúðri sem þarna var yfirvofandi.
Nú þurfa íbúar að tryggja að bæjaryfirvöld vinni nýja ásættanlega tillögu í samstarfi við íbúasamtökin þ.a. svæðið verði okkur Seltirningum til sóma.
Í dag kyngdi niður snjó víða um land.
Mánudagur 14. janúar
Í dag á dagbókin á www.siv.is afmæli því nú eru 6 ár síðan ég hóf dagbókarfærslur daglega.
Hei
masíðan sjálf er eldri því hún fór í loftið í mars árið 1999 fyrir alþingiskosningarnar það ár. Er mér sagt að ég hafi verið með næst fyrstu stjórnmálasíðuna á netinu af þessari gerð, þ.e. næst á eftir Birni Bjarnasyni.
Á síðunni eru nú 11.780 myndir þ.a. ég set að meðaltali 5 myndir inn á dag, stundum færri, stundum fleiri.
Nýja útlitið er smekklegt og stílhreint og ber merki svokallaðs minimalisma eða naumhyggju.
Á síðustu sex árum hefur útlitinu verið breytt nokkrum sinnum í takt við tíðarandann.
Hér eru sýnishorn: Fyrsta útlit og annað útlit.
Hér eru þriðja útlit og fjórða útlit.
Hér er pistillinn "Dagbókin á siv.is 6 ára" um ástæður þess að ég set tíma og kraft í að halda úti dagbókinni.
í tilefni afmælisins í dag vil ég þakka öllum þeim sem kíkja hér inn daglega eða sjaldnar.
Kl.12 var fundur framkvæmdastjórnar Framsóknarflokksins. Kl.14-16 var ég um borð í danska varðskipið Vædderen í Reykjavíkurhöfn en um þessar mundir er áhöfn Triton um borð í því skipi.
Þegar ég kom um borð biðu mín um 40 sjóliðar í matsalnum.
Þegar við höfðum öll komið okkur fyrir tók ég til við spennandi en ögrandi verkefni.
Þýddi ég og las jafnóðum fyrir sjóliðana valda kafla úr bókinni "Útkall-þyrluna strax!" eftir Óttar Sveinsson vegna kynna minna af áhöfn Tritons.
Meðan á lestri stóð mátti heyra saumnál detta.
Þar sem bókin er á íslensku hafa sjóliðarnir ekki fyrr fengið sömu innsýn í atburðina og þeir nú fengu að heyra.
Stund þessi var mjög magnþrungin en að saman skapi góð.
Kl.17 vorum við Ragnheiður Elín í viðtali í Ríkisútvarpinu.
Sunnudagur 13. janúar
Um miðjan daginn nýttist tíminn í góðan göngutúr um Suðurnesið og Bakkatjörn framhjá Gróttu.
Kl.17-19 var fundur í heimahúsi.
Um kvöldið kom frétt um skipulagsmál á Bygggarðasvæðinu, austan Gróttu og norðan Nesstofu, á Stöð 2.
Vonandi hættir meirihluti bæjastjórnar Seltjarnarness við áform sín um að byggja of há hús á svæðinu.