Föstudagur 15. febrúar
Kl.12:15 hófst fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Eftir hádegi hófst fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Stóð fundurinn til kl.15:30.
Í dag kom út fréttabréf Samtaka atvinnulífsins(SA) þar sem fjallað eru um áherslur Íslands gagnvart íslenska ákvæðinu svokallaða á vettvangi Kyoto-bókunarinnar, en samningar um næsta skuldbindingartímabil hennar eru að hefjast.
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa verið mjög ósammála í þessu stóra hagsmunamáli hingað til.
Skrifaði ég þennan pistil í framhaldi af lestri fréttabréfs SA "Hvað segir ríkisstjórnin eftir 7 daga um loftslagsmálin?".
Kl.17:30-18:30 skrapp ég í Héðinshúsið á Seljavegi 2´ivesturbænum.
Þar var verið að opna formlega nýtt glæsilegt húsnæði Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur sem hefur nú flust upp um hæð í húsinu og farið úr 200 fermetrum í um 600 fermetra.
Áður en ég varð stjórnmálamaður í fullu starfi fyrir rúmum 12 árum var ég sjúkraþjálfari í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur um árabil.
Mjög gott var að vinna í fyrirtækinu enda starfsandinn frábær og starfið gefandi.
Kl.20 fórum við mamma í Háskólabíó að sjá Brúðgumann.
Myndin var skemmtileg, vel tekin og talhljóðið skiljanlegt sem er meira en segja má um margar íslenskar myndir í gegnum tíðina.
Mæli hiklaust með því að fólk sjái myndina í bíó á stórum skjá og í góðu hljóðkerfi.
Fimmtudagur 14. febrúar
Kl.8:30 hófst fundur allsherjarnefndar Alþingis.
Kl.10:30 vorum við Guðni Ágústsson og Valgerður Sverrisdóttir með blaðamannafund í þingflokksherbergi framsóknarmanna þar sem við kynntum nýtt frumvarp þingflokksins um þjóðareign á auðlindum sem ekki eru háðar einkaeignarétti.
Fór síðan aftur á fund allsherjarnefndar.
Kl.12:30 lá leiðin á fund utanríkismálanefndar Alþingis í utanríkisráðuneytinu.
Kl.13:30-17:45 heimsótti utanríkismálanefndin varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli.
Þar skoðuðum við ýmis mannvirki s.s. skýli 831, sprengjuheldu herflugskýlin og aðstöðu Ratsjárstofnunar þar sem ráðgert er að hýsa nýja Varnarmálastofnun.
Kl.18:00-19:30 var fundur allsherjarnefndar Alþingis þar sem við héldum áfram að fara yfir frumvarp til sakamálalaga.
Miðvikudagur 13. febrúar
Kl.8:30 hófst fundur allherjarnefndar Alþingis.
Kl.12 bauðu Kvenréttindafélag Íslands alþingismönnum á skemmtilegan kynningarfund þar sem boðið var upp á þorramat.
Kl.16:00-17:30 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi þar sem við ræddum stöðuna í kjarasamningarviðræðunum.
KL.17:30-20:00 var fundur Landsstjórnar Framsóknarflokksins haldinn á skrifstofunni á Hverfisgötunni.
Um kvöldið hengdum við upp nýjar gardínur í eldhúsið, en við erum búin að vera gardínulaus síðan í sumar.
Þriðjudagur 12. febrúar
Kl.7:20 var ég í útvarpsviðtali á Bylgjunni og fjallaði um þingsályktunartillögu mína og fleiri þingmanna um réttindi líffæragjafa.
Var síðan á skrifstofunni til kl.13:30 en þá hófst fundur á Alþingi.
Kl.15:30 var utandagskrárumræða sem ég tók þátt í ásamt Bjarna Harðarssyni fyrir hönd framsóknarmanna.
Fjallaði hún um álit Umboðsmanns Alþingis á samninga sem ráðherrar gera við einkaaðila og félagasamtök um ýmsa þjónustu.
Síðan tók ég einnig þátt í umræðum um frumvarp til nýrra skipulagslaga.
Kl.18 hófst þingflokksfundur framsóknarmanna í höfuðstöðvum flokksins á Hverfisgötunni.
Kl.17 hófst kveðjuhóf Landhelgisgæslunnar þar sem Ulf M. Berthelsen, skipherra á danska varðskipinu Triton, nú um mundir á Vædderen, var kvaddur því hann er að hætta á sjónum og taka við stöðu við sendiráð Danmerkur í Litháen.
Ulf M. Berthelsen, skipherra, er mikill Íslandsvinur og hefur starfað náið með Landhelgisgæslunni okkar um árabil.
Mánudagur 11. febrúar
Kl.12:15 var fundur formanna þingflokka ásamt forseta Alþingis.
Kl.13:30-15:00 var fundur þingflokks framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra þar sem ég spurði Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, út í samningsmarkmið Íslands gagnvart næsta skuldbindingartímabili Kyoto-bókunarinnar.
Kl.19 fórum við Steini í Vædderne í matarboð til skipherrans um borð ásamt fleiri vinum hans.
Sunnudagur 10. febrúar
Kl.15 fórum við Steini í glæsilegt níræðisafmæli Guðmundar Jónassonar, fyrrum kaupfélagsstjóra á Siglufirði.
Guðmund og fjölskyldu hef ég þekkt í langan tíma því þau bjuggu í húsinu við hliðina á ömmu og afa á Eyrargötunni á Siglufirði.
Við dóttir hans og Margrétar, Arnfríður Guðmundsdóttir, lékum okkur saman á Sigló í den og urðum þá vinkonur.
Guuðmundur og Margrét voru fjallhress í afmælinu.
Laugardagur 9. febrúar
Kl.11 hófst morgunkaffifundur framsóknarmanna í Garðabæ.
Stjórn kjördæmissambands framsóknarmanna í Suðvestur-kjördæmi, bæjarfulltrúar í Garðabæ, þær Sigrún Aspelund og Hjördís Eva Þórðardóttir, Sæunn Stefánsdóttir, ritari Framsóknarflokksins og fleiri góðir félagar mættu á svæðið.
Um miðjan daginn lá leiðin í Smáralindina að versla.
Seinni partinn fór ég í danska varðskipið Vædderen að þýða kafla úr bókinn "Útkall-Þyrluna strax!" eftir Óttar Sveinsson, en áhöfn danska varðskipsins Triton er um borð í Vædderen um þessar mundir.
Að þessu sinni þýddi ég allt sem haft er eftir Rudi Sambleben í bókinni.
Rudi stýrði gúmbát Tritons sem valt með sjóliðunum átta þann 19. janúar 2006 í tengslum við strand Wilson Muuga.
Rudi festist undir bátnum þar sem uppblásið vesti hans klemmdist milli stýris og sætis.
Gat hann að lokum með naumindum bjargað sér undan bátnum.
Sjóliðarnir velktust um í tvo tíma í sjónum í hræðilegum aðstæðum þar til TF-LÍF bjargaði þeim.
Einn sjóliði fórst í slysinu.
Það var mjög gefandi að lesa fyrir Rudi.
Hér eru upplýsingar teknar af bakhlið bókarinnar "Útkall-Þyrluna strax!", en bókin kom út fyrir síðustu jól.
Um kvöldið fórum við Steini í þorrablót til vina okkar.