Föstudagur 29. febrúar
Kl.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Skrapp síðan upp á Fjölva í tengslum við tímaritsgrein.
Seinni part dags undirbjó ég mig fyrir Kastljós kvöldsins.
Kl.18:30 vorum við Bjarni Benediktsson, alþingismaður, að ræða fréttir vikunnar ásamt Jóhönnu Vilhjálmsdóttur í Kastljósinu í rúv-sjónvarpi.
Ræddum við um efnahagsmál, feðrunarmál, transfitusýrur, Eurovision og fleira.
Um kl.20 fór ég í þingveisluna svokölluðu á Hótel Sögu.
Fimmtudagur 28. febrúar
Kl.9:30-10:50 var skemmtilegur stjórnmálafundur í Flensborg í Hafnarfirði þar sem fulltrúar stjórnmálaflokkanna mættu og ræddu við nemendur.
Fundurinn var hluti af dagskrá þemadaga í skólanum.
Þema þessara daga er sjórinn eins og sjá mátti af flottum skreytingum í andyri skólans.
Rétt fyrir hádegi hélt ég ræðu fyrir hönd framsóknarmanna um frumvarp til laga um alþjóðlega þróunaraðstoð Íslands.
Eftir hádegi tók ég þátt í umræðum um friðargæslu okkar í Afganistan.
Var síðan í þinginu fram að kvöldmat.
Í gær kynnti heilbrigðisráðherra þá fyrirsjáanlegu niðurstöðu að byggja á upp nýtt sjúkrahús, Landspítala-háskólasjúkrahús(LSH), við Hringbraut eins og að hefur verið stefnt í tíð síðustu ríkisstjórnar.
Ríkisstjórnin með heilbrigðisráðherra í broddi fylkingar hefur tafið uppbyggingu sjúkrahússins með bæði nefndarstarfinu og niðurskurði á fjáveitingum til verkefnisins.
Töfin mun líklega kosta skattgreiðendur að lágmarki 3 milljarðar króna.
Töfin gæti kostað meira ef ríkisstjórnin tefur verkefnið enn frekar en orðið er.
Af þessu tilefni skrifaði ég þennan pistil" Ríkisstjórnin tefur uppbyggingu LSH".
Miðvikudagur 27. febrúar
Í gær kom fram í fréttum rúv-sjónvarps að ríkisstjórnin hefði lagt fram sjónarmið sín um hvað Ísland myndi leggja áherslu á í samningslotunni sem nú er að hefjast um næsta skuldbindingartímabil Kyoto-bókunarinnar.
Ríkisstjórnin er greinilega í bullandi vandræðum miðað við fréttina.
Af því tilefni skrifaði ég pistilinn "Ríkisstjórnin treður marvaðann í loftslagsmálunum".
Kl.8:30-10:10 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Kl.10:15-12:00 fundur í utanríkismálanefnd Alþingis.
Í hádeginu mætti Dagný Jónsdóttir, fyrrum alþingismaður með nýfæddri dóttur sinni í heimsókn á Alþingi.
Kl.13:30 hóst fundur á Alþingi með umræðum um störf þingsins þar sem Sigfús A. Karlsson, varaþingmaður Framsóknarflokksins, tók upp mál íbúðalánasjóðs.
Við Guðni Ágústsson tókum einnig þátt í umræðunum fyrir hönd framsóknarmanna.
Kl.15:30 var fundur þingflokksformanna ásamt forseta Alþingis.
Kl.16-18 var fundur þingflokks framsóknarmanna á Alþingi.
Þriðjudagur 26. febrúar
Kl.7:30 vorum við Árni Páll Árnason, alþingismaður, í viðtali hjá Sveini Helgasyni á Rás 1 í Rúv að ræða um m.a. sjálfstæði Kosovo, framboð Íslands í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og loftslagsmál.
Hér er slóð á upptökuna á ruv.is.
Fór síðan í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Kl.12 er fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Í dag birtist grein mín "Mótorhjól og útivist" í blaðinu 24 stundir.
Hér er pistill um furðusvar umhverfisráðherra vegna kortlagningu vega og slóða á hálendinu.
Ég hlýt af efast um að ráðherrann lesi eigin svör sem gefin eru þinginu miðað við þær röngu upplýsingar sem í því eru gefnar.
Í gær var dreift á Alþingi þingsályktunartillögu minni og meðflutningsmanna um að settar verði reglur um hámarksmagn transfitusýra í matvælum á sama hátt og Danir hafa gert.
Transfitusýra, eða hert fita, er afar skaðleg því hún eykur verulega áhættu á æða- og hjartasjúkdómum auk offitu og sykursýkis 2.
Árið 2002 neyttum við Íslendingar að meðaltali 3,5 gr transfitusýra á dag, en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með að ekki verði neytt meira en 2g. á dag af henni.
Meðaltalshlutfallið okkar er því of hátt og ljóst að fjöldi Íslendinga er að innbyrða allt of mikið magn transfitusýra.
Kl.17 var mjög jákvæð og skemmtileg athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þar sem Fréttablaðið veitti svokölluð samfélagsverðlaun.
Kl.20-23 var aðalfundur Jöklarannsóknarfélags Íslands(JÖRFÍ).
Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf og síðan myndasýning Finns Pálssonar.
Mánudagur 25. febrúarKl.11 hófst fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Kl.13 var fundur þingflokksformanna og forseta Alþingis þar sem við ræddum þingstörf vikunnar.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Skrapp heim seinni part dags.
Kl.19 var ég í þinginu og tók stuttlega þátt í umræðunum.
Kl.20:00-21:15 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Sunnudagur 24. febrúar
Eftir að við Steini vorum búin að ganga frá húsinu lögðum við af stað suður.
Á leiðinni stoppuðum við í kaffi í Grafargerði, rétt sunnan Hofsóss, hjá Unni og Magnúsi nágrönnum okkar á Seltjarnarnesi.
Sýndu þau okkur fjöruna sína og hluta jarðarinnar sem hin er öll hin glæsilegasta.
Heimleiðinni gekk vel enda veður bjart og fallegt.
Vorum við komin heim um kl.19:30.
Laugardagur 23. febrúar
Fyrir hádegi skrapp ég að horfa á hörkuspennandi blakmót kvenna og karla í íþróttahúsinu á Siglufirði.
Blakmót þessi eru árlegur viðburður og sækja mörg utanbæjarlið mótið.
Seinni part dags lá leiðin á skíði á Skíðasvæði Siglfirðinga í Skarðsdal.
Nægur snjór var á svæðinu og færið frábært.
Þrátt fyrir að hnéð á mér má muna sinn fífil fegurri frá því áður en ég krossbandsslitnaði var lítið mál að skíða sig vel heita í brekkunum á Sigló.