Föstudagur 7. mars
Í gær var dreift á Alþingi fyrirspurn minni til umhverfisráðherra um kortlagningu vega- og slóða á hálendinu og samráð um þau mál við ferða- og útivistarhópa s.s. Ferðafélag Íslands, Útivist, Ferðaklúbbinn 4x4, mótorhjólaklúbba og samtök hestamanna.
Fyrirspurnin er eftirfylgni við svar ráðherra frá því um daginn um stöðu þeirra sem nýta vélhjól til útivistar og ferðalaga.
Kl.12:15-13:30 var rótarýfundur á Seltjarnarnesi.
Hafði ég útvegað ræðumann dagsins, Kristínu Einarsdóttur, kennara í Smáraskóla.
Kristín sagði okkur frá afar áhugaverðu verkefni í Smáraskóla sem felst í því að hver árgangur fer í skemmtilegar útivistarferðir saman.
Farið er m.a í Fræðasetrið í Gróttu, hjólað yfir Kjöl og svokallaður Laugarvegur á hálendinu genginn svo eitthvað sé nefnt.
Erindi Kristínar var mjög skemmtilegt og á erindi við t.d. alla þá sem eiga börn og barnabörn láta sig uppeldi þeirra varða.
Kl.20-23 vorum við Steini á skemmtilegri Góugleði framsóknarmanna í Hafnarfirði þar sem gestur fundarins var Bjarni Harðarsson, alþingismaður.
Fimmtudagur 6. mars
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Við Bjarni Harðarsson nýttum tækifærið og bárum fram spurningar fyrir hönd framsóknarmanna, hann um hækkanir á aðföngum til búvöruframleiðslu en ég um þjónustu svæðisskrifstofunnar á Reykjanesi við fötluð börn.
Síðan hófst umræða um norrænt samstarf sem ég tók þátt í.
Í hádeginu var fundur í heilbrigðisnefnd Alþingis.
Eftir hádegi lá leiðin á Iðnþing sem haldið var á Grand hótelinu.
Kl.19:30-23:30 var vinnukvöldverður utanríkismálanefndar Alþingis ásamt fulltrúum frá Evrópuþinginu, en á morgun verður haldin ráðstefna um Evrópusambandsmálefni með þátttöku þeirra.
Miðvikudagur 5. mars
Seinni partinn í gær svaraði dómsmálaráðherra skriflega fyrirspurn minni um hvort til greina kæmi að taka upp notkun svokallaðra ökklabanda til að tryggja betur farbann grunaðra sakamanna.
Svar dómsmálaráðherra er að mínu mati nokkuð jákvætt því þar segir að kanna beri til hlítar hvernig best yrði staðið að því að nýta slíkt úrræði og vísað í góðan árangur af notkun ökklabanda víðs vegar í heiminum, m.a. í Bandaríkjunum, Bretlandi og Svíþjóð.
Fyrir utan það að nýta ökklabönd við farbann segir einnig í svarinu að nýta megi þau við afplánun s.s. við afplánun vægari refsinga, t.d. vararefsingar fésekta, og að með þeim yrði unnt að hafa betra eftirlit með kynferðisafbrotamönnum sem fá reynslulausn.
Ég er sammála ráðherra um að við eigum að kanna þessi mál vel því grunaðir sakamenn eru í æ ríkari mæli að brjóta farbann sem þeir hafa verði dæmdir til að hlíta.
Auðvelt virðist vera fyrir þá að laumast úr landi annað hvort án vegabréfa eða á vegabréfum annarra einstaklinga.
Væru ökklabönd nýtt yrði Leifsstöð svokallaður heitur reitur, þ.e. viðvörunartæki myndu gera lögreglu viðvart færi einstaklingur með ökklaband inn í Leifsstöð á laumuleið sinni úr landi.
Einhverjir í ökklabandi myndu sjálfsagt reyna flóttaleið á sjó, en sú leið er mun torfærari en flug frá Leifsstöð.
Hér er skrifuð frétt af ruv.is um málið og sjónvarpsfréttin sjálf.
Kl.8:30-10:00 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Kl.10:15-11:50 var fundur í utanríkismálanefnd Alþingis.
Kl.12 komu Zontakonur á Alþingi til að selja rósina sína til sturktar starfsemi Stígamóta.
Hér er frétt rúv-sjónvarps um málið.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins.
Síðan voru fyrirspurnir til ráðherra þar sem ég m. a. spurði dómsmálaráðherra út í uppbyggingu höfuðstöðva lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og fangelsis, en Hafnarfjarðarbær hefur boðið lóð undir slíka starfsemi.
Túlka ég svar ráðherra sem höfnun á erindi Hafnarfjarðarbæjar.
Kl.16-19 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.20:30-22:15 var skemmtilegur og fræðandi fundur í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi.
Við Sigurlaug Viborg, forseti Kvenfélagasambands Íslands, vorum gestir fundarins.
Þriðjudagur 4. mars
Kl.10:45 tók ég viðtal á Alþingi.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins.
Tók ég þátt í þeim og ræddi um lífeyrismál og stuðningsfjölskyldur fatlaðra barna.
Síðan var utandagskrárumræða um efnahagsmál að frumkvæði Steingríms J. Sigfússonar.
Tókum við Guðni Ágústsson og Sigfús A. Karlsson þátt í umræðunum fyrir hönd framsóknarmanna.
Kl.17 var fundur á flokksskrifstofunni um utanríkis- og dómsmál.
Kl.19-24 var veisla þingflokksins til heiðurs þingfulltrúum á Búnaðarþingi sem nú stendur yfir á Hótel Sögu.
Mánudagur 3. mars
Í síðustu viku setti ég inn tólfþúsundustu myndina í dagbókina.
Þann 14. janúar sl. voru 6 ár síðan ég hóf dagbókarfærslur daglega, en heimasíðan sjálf er eldri því hún fór í loftið í mars árið 1999.
Að meðaltali hef ég sett um 5 myndir á dag inn á síðuna þau 6 ár sem ég hef fært dagbókina daglega.
Mynd nr. 12.000 er tekin á Tröllaskaga í Mánárskriðum milli Siglufjarðar og Fljótanna og sýnir hrikalegt landslag skriðanna sem ekið er um.
Myndin er tekin út um framrúðuna á bílnum í þungbúnu veðri og því ekkert sérlega falleg.
Hún er eigi að síður meðal tímamótamynda á síðunni.
Mynd nr. 11.000 af sunnlenskum fjöllum var tekin 22. júlí árið 2007.
Mynd nr.10.000 af Bjarka Birgissyni var tekin 21. febrúar árið 2007.
Mynd nr. 9.000 í berjamó var tekin 26. ágúst árið 2006.
Mynd nr. 8.000 af stjórnmálaskóla SUF var tekin 11. mars árið 2006.
Mynd nr. 7.000 af hvolpunum Tinnu og Bóa var tekin 4. ágúst árið 2005.
Mynd nr. 6.000 af Ástrósu og Guðmundi á fundi í rótary var tekin 4. febrúar árið 2005.
Mynd nr. 5.000 af Siv, Sigurði og Ingunni í Ófeigsfirði var tekin 1. ágúst árið 2004.
Mynd nr. 4.000 af Kofi Annan var tekinn 29. apríl árið 2004.
Mynd nr. 3.000 af Gesti og Stefáni Boga var tekin 14. nóvember árið 2003.
Mynd nr. 2000 af Dalbæ á Snæfjallaströnd var tekin 29. júlí árið 2003.
Mynd nr. 1000 af Hákoni og Siv við hestagerði í Heiðmörk var tekin 1.mai árið 2003.
Við systkinin skruppum í morgunkaffi til mömmu.
Kl.13 var fundur þingflokksformanna ásamt forseta Alþingis.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra og umræðum um aðstoðarmannafyrirkomulag fyrir þingmenn.
Tók ég þátt í umræðunni um aðstoðarmenn þingmanna.
Kl.17 var ég á fundi á Seltjarnarnesi.
Sunnudagur 2. mars
Kl.13:30 var ég viðstödd setningu Búnaðarþings á Hótel Sögu.
Seinni partinn fórum við Steini á fréttaljósmyndasýninguna í Gerðarsafninu í Kópavogi, en hún hefur verið haldin árlega hin seinni ár.
Sýningin er mjög skemmtileg eins að hinar fyrri.
Fórum síðan að versla og í kaffi til tengdó.
Laust fyrir kvöldmat nýttist tíminn í góða hressingargöngu um Bakkatjörn um framhjá Gróttu.
Laugardagur 1. mars
Kl.11 var morgunkaffi framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Fór síðan í Smáralindina að versla.
Seinni part dags nýttist tíminn í góðan göngutúr út í Suðurnesið.
Um kvöldið buðum við mömmu í lambahrygg til okkar.