Föstudagur 14. mars
Kl.12.15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjnarnarness.
Nýtti síðan seinni part dags í lestri gagna.
Kl.18 fór ég í fréttaviðtal á rúv-sjónvarpi vegna stöðunnar á Landspítalanum-háskólasjúkrahúsi.
Hér er skrifleg frétt af vef ruv.is um málið.
Fimmtudagur 13. mars
Kl.9 var fundur utanríkismálanefndar Alþingis í Norad sem er sú stofnun Norðmanna sem sér um þróunaraðstoð þeirra.
Þar fengum við upplýsingar um áherslur Norðmanna í þróunaraðstoðinni.
Síðan gengum við yfir í norska Stórþingið og funduðum með Inge Lönning, varaforseta Stórþingsins, sem fræddi okkur um nýjar reglur sem þingið hefur sett um meðhöndlun EES tilskipana í þinginu.
Næst fórum við á fund norsku utanríkimálanefndarinnar í Stórþinginu.
Þar tók Olav Akselsen, formaður nefndarinnar, á móti okkur ásamt öðrum nefndarmönum.
Ræddum við um þróun Evrópusambandsins, stöðu mála á Íslandi og í Noregi gagnvart því hvort sótt yrði um aðild að ESB eða ekki, varnar- og öryggismál, þróunaraðstoð, málefni Afganistan og Nató og málefni norðurslóða.
Fundurinn var afar gagnlegur og fróðlegur á allan máta.
Samstarf Norðmanna og Íslendinga er svo gott að mínu mati um þessar mundir að líklega getur það ekki orðið öllu betra.
Síðan lá leiðin í norska varnarmálaráðuneytið þar sem við hittum aðstoðarvarnarmálaráðherrann.
Hann hélt fyrirlestur fyrir okkur um áherslur Norðmanna í öryggis- og varnarmálum og málefni norðurslóða.
Í hádeginu borðuðum við í norska Stórþinginu ásamt fulltrúum í Efta/EES nefndinni þeirra.
Hér er myndir frá fundum dagsins.
Kl.15:19 tókum við lestina út á Gardemoen og flugum heim í gegnum Kaupmannahöfn.
Vorum við lent í Keflavík um kvöldið og ég komin heim fyrir miðnætti.
Miðvikudagur 12. mars
Um morguninn skruppum við mamma að skoða gler sem Tonje Bones, dóttir vinkonu mömmu, Kari Ingebretsen Bones gerir.
Tonje Bones er með verkstæði og gallerí á Kirkegata 14 í Kongsberg í Noregi og er slóðin á heimasíðu hennar www.kongsbergglassblaseri.com.
Kl.13 bauð sendiherra okkar, Stefán Skjaldarson, utanríkismálanefnd Alþingis til hádegisverðar í sendiráðinu á Bygdö.
Kl.15.30 átti síðan utanríkismálanefnd Alþingis fund með Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, í utanríkisráðuneytinu í Ósló.
Ræddum við um öryggis- og varnarmál, Afganistan, Evrópusambandsmál s.s. þjónustutilskipunina og málefni Norðurslóða.
Kl.19 bauð utanríkismálanefnd norska Stórþingsins okkur, utanríkismálanefnd Alþingis, til vinnukvöldverðar, en á morgun munum við hitta nefndina aftur á fundi í Stórþinginu.
Þriðjudagur 11. mars
Kl.13 fór fram útför móðursystur minnar, Karin Elisabeth Juhlin Winther, frá Kongdelene kirke í Hurum við Óslóarfjörðinn.
Fjölmenni mætti í útförina.
Að henni lokinni var erfidrykkja rétt við Sætre í Hurum.
Mánudagur 10. mars
Kl. 9:30 hófst fundur fulltrúa Norðurlandaráðs og Eystrasaltsráðsins ásamt stjórnmálamönnum frá Hvíta-Rússlandi, en fundurinn er framhald af samskiptum þessara aðila á sambærilegum fundi í fyrra.
Stýrði ég fundinum fram að kaffihléi þar sem Dagfinn Höybraten kom aðeins of seint til fundar þar sem flugi hans var aflýst í gær.
Fundurinn stóð til kl.17.
Kl.18:35 flaug ég til Óslóar.
Sunnudagur 9. mars
Kl.14:15 var flug til Kaupmannahafnar og þaðan áfram til Litháen.
Á mánudaginn er þar fundur fulltrúa Norðurlandaráðs og Eystrasaltsráðsins ásamt stjórnmálamönnum frá Hvíta-Rússlandi, en fundurinn er framhald af samskiptum þessara aðila á sambærilegum fundi í fyrra.
Laugardagur 8. mars
Kl.11 var morgunkaffi framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Nýtti síðan daginn í að sinna erindum í bænum.
Seinni partinn sótti ég Simma sem gistir hjá okkur í nótt.
Um kvöldið las ég hluta af gögnunum sem eru til undirbúnings fundum sem ég ég fer á í næstu viku.
Pakkaði síðan í tösku því á morgun liggur leiðin til Litháen á fund fulltrúa Norðurlandaráðs og Eystrasaltsráðsins ásamt stjórnmálamönnum frá Hvíta-Rússlandi.