Föstudagur 28. mars
Kl.12:15 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Vann síðan í gögnum fyrir komandi þingviku.
Kl.21 var myndakvöld heima hjá Sigrúnu og Villa, veiðifélögum okkar úr Breiðdalsá.
Skemmtum við okkur vel við að skoða flottar myndir úr ánni fram eftir kvöldi.
Fimmtudaginn 27. mars
Byrjaði vinnudaginn á að fara í útvarpsviðtal á rúv-útvarpi til að fjalla um hið dæmalausa bréf sem Árni M. Mathiesen, settur dómsmálaráðherra, sendi Umboðsmanni Alþingis.
Í bréfinu grefur ráðherra undan trúverðugleika Umboðsmanns.
Kl.11 var fundur þingflokksformanna ásamt forseta Alþingis þar sem við ræddum um þingstörf næstu viku.
Skrapp um miðjan daginn upp á Barnaspítalann í heimsókn og svo á tölvudeild Alþingis.
Kl.17 fór ég á fund á Seltjarnarnesi.
Kl.18:20 var smink og um kl.19 vorum við Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður, í beinni útsendingu í Íslandi í dag á Stöð 2 að ræða um bréf Árna M. Mathiesen, setts dómsmálaráðherra, til Umboðsmanns Alþingis.
Þátturinn var sendur út í fyrirtækinu Prologus í Súðarvogi, www.prologus.is.
Miðvikudaginn 26. mars
Vann í gögnum um miðja daginn og undirbjó mig fyrir útvarpsviðtal.
Kl.16 ók ég Hákoni niður á Barnaspítalann í heimsókn til Bjarka Þórs.
Kl.16:30 var ég í beinni útsendingu á Bylgjunni þar sem rætt var um fjárframlög til lögreglunnar og starfsumhverfi hennar.
Kl.17 lá leiðin í stórskemmtilegt boð sem Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala-Háskólasjúkrahúss(LSH) og Jóhannes M. Gunnarsson, framkvæmdastjóri lækninga á LSH til margra ára, héldu í tilefni þess að þeir eru að hverfa úr forystu spítalans um þessar mundir.
Fjöldi manns mætti í boðið og skemmti sér vel með þeim Magnúsi og Jóhannesi.
Á þeim tíma sem ég sinnti störfum heilbrigðisráðherra átti ég afar gott samstarf við báða þessa sómamenn.
Hér er grein sem birtist í 24 stundir um daginn þar sem ég fjalla um málefni LSH.
Þriðjudagur 25. mars
Kl.13 fórum við Steini í útför Ástu Ingvarsdóttur sem gerð var frá Bústaðakirkju.
Að útför lokinni var erfidrykkja í Gullhömrum.
Um miðjan daginn skilaði ég skíðaskóm Simma og fleira til Ingunnar systur.
Kl.21 fórum við Hákon og Húnbogi að heimsækja bróðurson minn, Bjarka Þór Friðleifsson, á Barnaspítala Hringsins.
Hann liggur á spítalanum slasaður eftir slys sem hann lenti í á páskadag í Bláfjöllum þegar snjósleði starfsmanna rann stjórnlaust á hann þar sem hann var að renna sér á brettinu sínu.
Bjarki Þór er hörkuduglegur strákur og nær sér vonandi sem fyrst.
Hér er Bjarki Þór með brettið sitt í Bláfjöllum fyrr í mánuðinum.
Mánudagur 24. mars
Í dag þrifum við húsið og gengum frá því.
Um miðjan daginn ók ég af stað heim.
Á leiðinni leit ég við í kaffi hjá Önnu Roth, þýskri hressri stelpu, sem vinnur á Hótel Tindastóli.
Var komin heim um kl.20.
Sunnudagur 23. mars
Í dag fórum við enn á ný á skíði í Skarðsdal og nutum þar veðurblíðunnar ásamt Siglfirðingum og gestum bæjarins.
Seinna um daginn hittum við Árni bróðir verkstjóra Metrostav, Václav Angel.
Um kvöldið grilluðum við nautalundir.
Laugardagur 22. mars
Veðrið var fínt í dag þ.a. við skelltum okkur öll á skíði á Skarðsdal.
Skíðuðum við alveg þangað til fjallið lokaði kl.17.
Um kvöldið var stefnan sett á Allann, eða Alþýðuhúsið, þar sem Siglfirðingar héldu skemmtunina "Frá Óperu til Idol".
Lummustuð var á Allanum þegar keppendur stigu á stokk og sungu hvern stórsmellinn á fætur öðrum.
Eftir Idolið á Allanum dönsuðum við nokkra dansa áður en við skruppum á Bíó Café þar sem Knattspyrnusamband Siglfirðinga var með skemmtun og ball.
Það er alltaf nóg um að vera á Siglufirði í menningarlífinu.