Föstudagur 4. apríl
Kl.7:20 fórum við Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir, af stað úr borginni áleiðis í Íþróttakennaraskólann á Laugarvatni.
Þar kenndi Ólafur nemendum um helstu einkenni geðraskana og hvernig takast skal á við streitu.
Ég var nokkurskonar leynigestur með Ólafi og sagði nemendum frá ráðum mínum gegn streitu í starfi.
Að kennslu lokinni nýttist tíminn m.a. í göngutúr á Laugarvatni í góða veðrinu.
Kl.16 var ég komin í bæinn og hélt þá rakleiðis niður á Alþingi til að skrifa undir skjal um að ég taki inn varamann minn, Samúel Örn Erlingsson, á Alþingi frá og með næst komandi mánudegi í hálfan mánuð meðan ég sæki tvo fundi á vegum Norðurlandaráðs.
Fimmtudagur 3. apríl
Kl.11:15 er flug til Akureyrar, en þaðan förum við Höskuldur Þórhallsson, alþingismaður og fleiri í samfloti með Kristjáni L. Möller, samgönguráðherra, til Siglufjarðar til að skoða Héðinsfjarðargöngin og á athöfn í Bíó Café.
Um páskana skoðaði ég hluta ganganna.
Framkvæmdin gengur þokkalega vel og er áætlað að verkinu ljúki í árslok 2009.
Þar sem Lágheiðin var lokuð ókum við lengri leiðina um Öxnadalinn og vorum komin á Siglufjörð um kl.15:25.
Þá lá leiðin beint inn í Héðinsfjarðargöngin.
Í miðjum göngunum var staldrað við þar sem samgönguráðherra fékk að sprengja.
Síðan var haldið inn í Héðinsfjörð, en þar hitti ég tékknesku vini mína frá Metrostav og fleiri.
Þaðan lá leiðin aftur um Héðinsfjarðargöngin og staldrað við í stutta stund til að fagna þessum fyrsta áfanga ganganna.
Í lokin fórum við í skemmtilega athöfn í Bíó Café.
Kl.21:15 var síðan flug til Reykavíkur.
Af flugvellinum lá leiðin í félagsheimili Seltjarnarness þar sem ég hélt ræðu í hátíðarhófi sem haldið var í tilefni af 40 ára afmæli Kvenfélagsins Seltjarnar.
Miðvikudagur 2. apríl
Kl.8:30 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Kl.11:15 var fundur í utanríkismálanefnd Alþingis.
Kl.12:15 var fundur í Landsstjórn Framsóknarflokksins á Hverfisgötunni.
Á fundinum var ákveðið að halda miðstjórnarfund flokksins þann 3. mai næst komandi.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins þar sem Höskuldur Þórhallsson, þingmaður framsóknar, ræddi um hátt eldsneytisverð.
Kl.15-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.18:10 svaraði Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, fyrirspurn minni um sérstöðu Íslands vegna flugsamgangna og væntanlegra kaupa flugrekenda á kolefniskvóta vegna þeirra.
Þriðjudagur 1.apríl
Kl.13.30 hófst fundur á Alþingi þar sem ég spurði Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformann Samfylkingarinnar, út í ummæli hans frá því í gær um að hann væri efasemdarmaður gagnvart boðuðum breytingum á starfsemi lögreglu og tolls á Suðurnesjum.
Ljóst er að ef skipta á upp starfseminni þarf að breyta lögum og reynir þá á atkvæði Samfylkingarmanna.
Af svörum þingmanna Samfylkingarinnar, þeirra Lúðvíks Bergvinssonar, Árna Páls Árnasonar og Helga Hjörvar, má ráða að Samfylkingin muni ekki styðja hugmyndir um aðgreininu þessarar starfsemi á Suðurnesjunum.
Frétt mbl.is um málið.
Kl.14 hófst síðan utandagskrárumræða að frumkvæði Birkirs J. Jónssonar um Sundabraut, en auk hans tók ég þátt í umræðunum fyrir hönd framsóknarmanna.
Kl.16 mættu Ferðaklúbburinn 4x4, vörubílstjórar, sendibílstjórar og leigubílstjórar fyrir framan Alþingi til að mótmæla háu eldsneytisverði.
Mótmælin fóru friðsamlega fram og að þeim loknum bauð ég talsmönnum mótmælenda í heitt kaffi á Alþingi.
Hér er myndskeið mbl.is af mótmælunum.
Félaginn í 4x4 sem talar í lok myndskeiðsins heitir ekki Hjörtur heldur Páll Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Rallý Palli.
Kl.17-19 var ég á fundi í málefnanefnd framsóknarmanna sem fjallar um utanríkis- og dómsmál og síðan á fund Landssambands framsóknarkvenna.
Um kvöldið fór ég í göngu út í Suðurnes.
Mánudagur 31. mars
Kl.8 var þingflokksfundur framsóknarmanna.
Kl.11 var fundur í utanríkismálanefnd Alþingis.
Kl.12:15 sýndi ég tékkneskum lögreglumönnum frá Interpol í Prag Alþingi.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum og utandagskrárumræðu um efnahagsmál.
Málshefjandi var Guðni Ágústsson, en auk hans tók Valgerður Sverrisdóttir þátt í umræðunum fyrir hönd framsóknarmanna.
Síðan var umræða um Breiðavíkurskýrsluna sem við Magnús Stefánsson tókum þátt í fyrir okkar flokk.
Var komin heim úr þinginu um kl.18:30 og fór þá í góða göngu út í Suðurnes.
Í dag var dreift á Alþingi frumvarpi sem ég er meðflutningsmaður að, en Kristinn H. Gunnarsson er fyrsti flutningsmaður þess.
Frumvarpið gengur út á að Alþingi velji Ríkisendurskoða með sambærilegum hætti og Umboðsmann Alþingis.
Sunnudagur 30.mars
Í dag birti mbl.is áskorun Íbúasamtaka um lágreista byggð í Bygggörðum austan Gróttu um að bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi haldi borgarafund um skipulagsmál svæðisins.
Strax eftir páska var íbúum einungis tveggja gatna kynnt tillaga um að 6 þriggja hæða blokkir ættu að rísa þarna ásamt meiri byggð fyrir um 370 íbúa alls.
Bæjaryfirvöld hafa ekki svarað skriflegum beiðnum íbúasamtakanna um virkt samráð við íbúa Seltjarnarness um málið og íbúakosningu þar sem Seltirningar gætu kosið milli tillagna.
Íbúasamtökin telja að ekki eigi að byggja hærri hús en tveggja hæða þarna í jaðri útivistarsvæðis Seltirninga og annarra höfuðborgarbúa sem það sækja.
Vann í gögnum hluta dagsins en fór seinni partinn í góða göngu í kringum Bakkatjörn framhjá Gróttu.
Laugardagur 29. mars
Kl.11 var morgunkaffifundur framsóknarmanna í Mosfellsbæ.
Að honum loknum leit ég við á sambærilegum fundi í Kópavogi.
Kl.13 sýndi ég Önnu Roth og vinum hennar Alþingi.
Síðan skrapp ég með þeim í kaffi á Kaffi París.
Kl.16 var fundur á skrifstofu þingflokksins.