Föstudagur 18. apríl
KL.12:15-13:30 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness úti í Gróttu þar sem Guðmundur G. Þórarinsson fjallaði um krossfestingu Krists.
Kl.14-15 vorum við Sigurjón M. Egilsson, ritstjóri Mannlífs, í útvarpsviðtali á Útvarpi Sögu hjá Óskari Bergssyni til að ræða um fréttir vikunnar.
Fimmtudagur 17. apríl
Kl.8:30 var fundur í Odda þar sem Diana Wallis, þingmaður á Evrópuþinginu, hélt erindi.
Kl.11 fékk ég mér kaffisopa á þinginu ásamt nokkrum hressum ráðherrabílstjórum.
Kl.11:15 hitti ég Diönu Wallis aftur á fundi með nokkrum framsóknarmönnum á Alþingi.
Var síðan á skrifstofunni fram eftir degi að undirbúa þingstörfin í næstu viku.
Kl.17 var fundur málefnahópar um mennta- og umhverfismál á flokksskrifstofunni þar sem við ræddum m.a. um skólamálafrumvörpin sem eru í menntamálanefnd Alþingis og frumvarp til skipulagslaga.
Miðvikudagur 16. apríl
Kl.12:15 var rótarýfundur á Hótel Sögu.
Kl.15:00 lá leiðin á Alþingi.
Kl.16-18 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.18-19 var framkvæmdastjórnarfundur Framsóknarflokksins þar sem við ræddum um komandi miðstjórnarfund flokksins sem haldinn verður þann 3 mai.
Um kvöldið fór ég í góðan göngutúr út í Suðurnes.
Í dag var umfjöllun um skólamál í Fréttablaðinu þar sem fram kemur að okkur hefur hrakað verulega í menntamálum á síðustu árum samkæmt PISA-könnuninni.
Niðurstaða þessi veikir stöðu menntamálaráðherra, en hún segir að vænta megi viðbragða hennar vegna þessa slaka árangurs bráðlega.
Í dag var tilkynnt í Morgunblaðinu andlát Sigurðar Björnssonar, bónda og fræðimanns á Kvískerjum í Öræfum, en hann lést á 91. aldursári.
Hef ég hitt Sigurð nokkrum sinnum, m. a. í Skaftafelli og á Kvískerjum, í tengslum við þekkingu hans á náttúrufræðum.
Til að mynda skrifað ég þetta í dagbók mína þann 15. janúar árið 2003 þegar ég undirritaði skipulagsskrá Kvískerjasjóðs ásamt þeim Kvískerjabræðrum Sigurði, Hálfdáni og Helga Björnssonum.
Hér heimsækjum við Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra, þá Kvískerjabræður í september árið 2002.
Hér undirbúum við undirritun stofnsáttmála Kvískerjasjóðs og hér erum við komin á Kvísker að athöfninni lokinni þann 15. janúar 2003.
Þriðjudagur 15. apríl
Kl.8 var undirbúningsfundur með Beate Wang, ritara velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Þar sem ég er formaður nefndarinnar og stýri fundum hennar reynum við Beate að undirbúa þá eins vel og við getum.
Kl.9-12 var fundur velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Kl.12:00-12:45 var samráðsfundu nefndar Norðurlandaráðs með forseta ráðsins, Erkki Tuomina.
Kl.12:45-14:30 heimsótti nefndin K46 og UNGBO.
K46 er úrræði fyrir 17-25 ára ungmenni sem vilja komast út úr vímuefnaneyslu og UNGBO, sem er búsetuúrræði fyrir ungmenni sem alist hafa upp á stofnunum og fósturheimilum og eru að stofna eigið heimili.
Starfsemi K46 og UNGBO hefur skilað miklum árangri.
Kl.14:30-15:15 fundaði síðan velfarðarnefndin á ný.
Kl.15:50 tókum við strætó út á flugvöll og flugum síðan heim til Íslands í gegnum London.
Lentum við um kl.23:10.
Í dag birtist eftir mig greinin "Að strúta sið" í dagblaðinu 24 stundir, en greinin fjallar um aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart efnahagsvandanum.
Mánudagur 14. apríl
Kl.10:15 fór ég í viðtal um norrænt samstarf.
Kl.11:30 hófst fundur í stjórn flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði.
Kl.13:00-16:15 var fundur flokkahóps miðjumanna í Norðurlandaráði þar sem við ræddum um tillögur sem líklega verða lagðar fram á þingi ráðsins í haust og um þau mál sem eru á dagskrá í nefndum ráðsins.
Seinni partinn var boðið upp á fyrirlestra um olíu og kynningu á menningardagskrá Stavanger því í ár er Stavanger menningarborg Evrópu.
Um kvöldið borðuðum við á Hall Toll sem er í gamla tollhúsinu við höfnina.
Sunnudagur 13. apríl
Kl.7:50 var flug til Óslóar og þaðan síðan til Stavanger.
Um kvöldið sigldum við inn Lysefjorden sem er rétt hjá Stavanger.
Þar sáum við m.a. Preikestolen, eða predikunarstólinn, sem er afar sérstök náttúrsmíð.
Laugardagur 12. apríl
Hluti dags fór í að skrifa og skila inn grein um efnahagsmál sem birtast mun í dagblaði á þriðjudaginn næsta.
Kl.17-22 fórum við fjölskyldan saman á árshátíð Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar(SÍH) í Laxnesi.
Við höfum aldrei fyrr farið öll saman á sömu árshátíðina, en þar sem við erum öll félagar í SÍH var það við hæfi.
Árshátíðin var mjög vel heppnuð enda hafði skemmtinefndin skipulagt vandaða og metnaðarfulla dagskrá fyrir allt kvöldið.
Að árshátíð lokinni pakkaði ég niður í tösku því í fyrramálið liggur leiðin til Stavanger í Noregi í gegnum Ósló.
Þar mun ég stýra fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs, en allar nefndir ráðsins funda þar næstu tvo dagana.