Föstudagur 9.mai
Dagurinn fór að mestu í að lesa gögn og dytta að í húsinu.
Um kvöldið elduðum við hakkrétt og röbbuðum málin.
Um nóttina snjóaði talsvert þrátt fyrir að komið er vor.
Líklega verður hægt að skíða fram í júní á Siglufirði ef ekki fer að hlýna.
Í dag birtist grein eftir mig í Morgunblaðinu sem ber nafnið "Ásta veit betur" og fjallar um heilbrigðismál.
Fimmtudagur 8. mai
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi.
Kl.11 hófst utandagskrárumræða að frumkvæði Kristins H. Gunnarssonar um stefnu ríkisstjórnarinnar í heilbrigðismálum.
Við Valgerður Sverrisdóttir tókum þátt í umræðunum fyrir hönd framsóknarmanna.
Kl.14 var fundur þingflokksformanna ásamt Sturlu Böðvarssyni, þingforseta, um störf þingsins á komandi dögum.
Var síðan í þinginu til kl.15.
Um kvöldið lá leiðin til Siglufjarðar.
Miðvikudagur 7. mai
Kl.8:30 hófst fundur allsherjarnefndar Alþingis.
Kl.10:15 hófst fundur í utanríkismálanefnd Alþingis.
Í dag heimsótti Anna Roth mig í þingið en hún er hér í bæjarferð.
Kl.13:30 var rætt um störf þingsins þar sem við í stjórnarandstöðunni mótmæltum því að vinna eigi nýtt frumvarp um sjúkratryggingar fyrir þinglok, en málinu var dreift í fyrsta sinn í dag í þinginu þótt frestur ríkisstjórnarninnar til að leggja fram ný frumvörp rann út þann 1. apríl.
Síðar á þinginu svaraði Einar K. Guðfinnsson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, fyrirspurn minni um hvort stjórnvöld muni bregðast við niðurstöðu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir 11. júní og hvort haft verður samráð við stjórnmálaflokkana um svarið fyrir þann tíma.
Svaraði hann því til að ríkisstjórnarflokkarnir myndu móta pólitískt svar fyrir 11. júní og gaf fyrirheit um að kynna þinginu svarið fyrir þinglok.
Kl.16-17 va þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.17-18 var kynning á verkefni nefndar sem er að skoða lyfjamál.
Kl.19-22 var vinnukvöldverður.
Þriðjudagur 6. mai
Kl.10:15 hófst fundur sem norska Stórþingið býður til í norska þinghúsinu.
Heiðursgestir fundarins voru þrjár stjórnmálakonur frá Íran, Elham Aminzadeh, Soheila Jelodarzadeh og Effat Shariati.
Einnig var nokkrum kvenkyns þingmönnum, sem eru fulltrúar í utanríkisnefndum norrænu þjóðþinganna, boðið á fundinn.
Á fundinum ræddum við um réttindi kvenna, mannréttindi og hlutverk alþjóðastofnana í að auka réttindi kvenna um allan heim.
Að fundi loknum hitti ég frænda minn, Knut Winther.
Kl.17:20 flaug ég til Danmerkur og þaðan síðan heim.
Lenti í Keflavík um kl.21.
Í dag birtist grein eftir mig um evrópumál í dagblaðinu 24 stundir undir titilinum "Lýðræðisleg sáttaleið":
Mánudagur 5. mai
Kl.12:10 var flug til Óslóar.
Lending var um kl.16:50.
Í Ósló var allt í blóma, túlípanar útsprungnir og tré laufguð.
Um kvöldið skrapp ég til Kirsti, frænku minnar og fjölskyldu, með íslenskan graflax og sósu.
Sunnudagur 4. mai
Kl.12:30 var ég ásamt Katrínu Jakobsdóttur, Björgvini Sigurðssyni og Guðlaugi Þór Þórðarsyni í Silfri Egils á rúv-sjónvarpi.
Ræddum við um heilbrigðismál, efnahagsmál og ESB-mál.
Hér er upptaka af þættinum.
Einnig fór ég í fréttaviðtal á í rúv-útvarpi vegna þess óróleika sem Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur skapað um starfsemi Landspítalans-háskólasjúkrahúss með framgöngu sinni.
Um kvöldið fór ég í te til mömmu.
Laugardagur 3. mai
Kl.13-19 var miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins haldinn í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Hér er dagskrá fundarins.
Fundurinn var mjög vel sóttur.
Formaður flokksins, Guðni Ágústsson, hélt mikla ræðu í upphafi fundar þar sem hann fjallaði m.a. um evrópumálin á skynsaman og eftirtektaverðan hátt.
Hér er ræða Guðna.
Í lok fundar var samþykkt ályktun um m.a. efnahagsmál og evrópumál.
Hér er ályktun miðstjórnarfundarins.
Hér er umfjöllun af fundinum í fréttatíma rúv-sjónvarps og umfjöllun mbl.is um fundinn.