Föstudagur 30. mai
Kl.8:30 var flug til Akureyrar.
Á Akureyri var formót Rótarý í Brekkuskóla á Akureyri þar sem ég sótti fræðslufund fyrir verðandi ritarar.
Kl.13:15-16:00 var Umdæmisþing Rótarý þar sem fjöldi rótarýfélaga mætti.
Á Akureyri hitti ég nokkra framsóknarmenn og aðra vini.
Kl.16:40 var flug til Reykjavíkur.
Í fréttum í dag voru sýnd myndskeið úr öryggismyndavélum þar sem hreyfingin vegna Suðurlandsskjálftans sést ágætlega.
Hér er myndskeið 1.
Hér er myndskeið 2.
Fimmtudagur 29. mai
Kl.10 hófst fundur á Alþingi á umræðum um sjúkratryggingar.
Nokkur hópur fólks með Sturlu V. Jónsson í broddi fylkingar, mætti fyrir utan Alþingi til að mótmæla ýmsu s.s. háu eldsneytisverði.
Kl.12:30 var fundur þingflokksformanna ásamt þingforseta, Sturlu Böðvarssyni, þar sem við fórum yfir þingstörfin í dag því náðst hefur samkomulag um að klára þingið í kvöld.
Kl.14 verða atkvæðagreiðslur.
Kl.15:45 sat ég inni í þingflokksherbergi framsóknarmanna á Alþingi að ræða við Valgerði Sverrisdóttur og Höskuld Þórhallsson.
Þá byrjað þinghúsið að leika á reiðiskjálfi vegna jarðskjáfta.
Skjálftinn var mjög öflugur.
Mér brá svo mikið að ég hljóp út úr þinghúsinu og beið utan við það um sinn.
Kl.16 átti ég að fara í beina útsendingu ásamt þeim Jóni Magnússyni og Lúðvík Bergvinssyni á Rás 2 á Thorvaldsen við Austurvöll til að ræða um þingstörfin sem ljúka á í kvöld.
Vegna mikils fréttaflutnings af jarðskjálftanum sem var upp á 6,1 á Richter var útvarpsviðtalinu af störfum þingsins frestað til kl.17.
Síðan var útvarpsviðtalinu við okkur aflýst vegna anna við fréttaflutning Ríkisútvarpsins af jarðskjálftanum.
Kl.16 hófst utandagskrárumræða um niðurstöðu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna vegna kvótakerfisins.
Valgerður Sverrisdóttir og Magnús Stefánsson fóru í umræðuna fyrir hönd okkar framsóknarmanna.
Hér er tengill á frétt af litlum jarðskjálfta.
Hér eru tenglar á fréttir af stóra jarðskjálftanum:
Frétt af mbl.is og frétt 2 af mbl.is og frétt 3 af mbl.is og frétt 4 af mbl.is.
Frétt 5 af mbl.is og frétt 6 af mbl.is og frétt 7 af mbl.is.
Þingstörf héldu áfram fram eftir kvöldi og nóttu.
Kl.2:10 um nóttina lauk fundi á Alþingi og er því hlé á þingfundum fram til september.
Nefndir þingsins geta starfað í sumar.
Miðvikudagur 28. mai
Kl.7:30 vorum við þingflokksformennirnir, Kristinn H. Gunnarsson og Lúðvík Bergvinsson, í beinni útsendingu í morgunútvarpi Ríkisútvarpsins að ræða þinglokin.
Kl.9:40 var fundur þingflokksformanna ásamt þingforseta.
Kl.10 hófst fundur á Alþingi á atkvæðagreiðslum.
Um miðjan daginn skoðaði ég umferðarfræðsluátak Umferðarstofu framan við Dómkirkjuna.
Um kl.16 var aftur fundur þingflokksformanna ásamt þingforseta.
Kl.18 var utandagskrárumræða um símhleranir á árunum 1949-1968 og tókum við Bjarni Harðarsson þátt í þeim fyrir hönd framsóknarmanna.
Hér er tengill á ræðuflutning minn.
Kl.20 voru atkvæðagreiðslur.
Kl.22:30 var fundur þingflokksformanna ásamt þingforseta þar sem við ræddum um hvernig ljúka mætti þingstörfum, en samkvæmt starfsáætlun á þingi að ljúka á morgun.
Á miðnætti var þingfundi slitið og var ég komin heim um kl.00:30.
Þriðjudagur 27.mai
Kl.10 hófst þingfundur á Alþingi á m.a. atkvæðagreiðslum um afbrigði og umræðum um heimild ríkissjóðs Íslands til sérstakrar lántöku á árinu .
Stuttu eftir að þingfundur hófst var fundur þingflokksformanna ásamt forseta Alþingis þar sem við ræddum um störf þingsins þá tvo daga sem eftir lifa af starfsáætlun þingsins.
Þingfundur stóð til kl.14 í dag.
Kl.14 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Síðan nýttist tíminn á skrifstofunni við að undirbúa ræðu mína fyrir eldhúsdagsumræðuna.
Þingfundur hófst aftur kl.19:50 á eldhúsdagsumræðum, en þar töluðum við Guðni Ágústsson og Höskuldur Þórhallsson fyrir hönd Framsóknarflokksins.
Hér er tengill á ræðuflutning minn og hér er ræðan uppskrifuð.
Að þeim loknum um kl.22 funduðu þingflokksformenn aftur ásamt forseta Alþingis til að fara yfir störf morgundagsins.
Mánudagur 26. mai
Kl.10 hófst fundur á Alþingi.
Kl.11 var fundur þingflokksfomanna ásamt þingforseta þar sem við ræddum um störf þingsins.
Í hádeginu var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Kl.13:30-15:00 var þingflokksfundur.
Kl.15 hófst þingfundur á ný.
Kl.16 var fundur þingflokksformanna ásamt forseta þingsins.
Kl.19 var fundur utanríkismálanefndar Alþingis.
Kl.19:45 var fundur þingflokksformanna ásamt forseta Alþingis þar sem við héldum áfram að ræða störf þingsins.
Frá kl.22-24 nýttist tíminn meira og minna í fundi milli þingflokksformanna og þingforseta til að ræða hvernig við gætum hugsanlega náð að klára þingstörfin á fimmtudaginn næsta eins og gert er ráð fyrir í starfsáætlun Alþingis.
Var komin heim úr þinginu um kl.00:30 eftir sleitulausa viðveru þar í 14 og hálfa klukkustund.
Sunnudagur 25. mai
Kl.13:30 var Siglfirðingamessa í Grafarvogskirkju og hátíðarkaffi Siglfirðingafélagsins í framhaldinu í safnaðarheimili kirkjunnar.
Yfir 300 manns mættu til messu og í kaffið.
Um miðjan daginn vann ég í tölvunni og undirbjó þingstörf næstu viku.
Kl.18:30 bauð Árni bróðir fjölskyldunni í glæsilega grillveislu í tilefni þess að hann er fertugur í dag.
Árni bróðir fæddist 25. maí 1968, síðast daginn í vinstri umferð á Íslandi.
Þann 26. maí árið 1968 gekk hægri umferð í gildi á Íslandi eftir að ekið hafði verið vinstra megin frá upphafi bílaaldar.
Til stóð að breyta í hægri umferð árið 1940, en því var frestað vegna hernáms Breta.
Pabbi rifjar árlega upp þessi tímamót því hann ók mömmu upp á fæðingardeildina vinstra megin en heim með hana og Árna nýfæddan hægra megin.
Hefur þetta greinilega verið mikill viðburður í hugum þeirra sem eftir muna miðað við lýsingar pabba.
Það má því segja að það sé vel við hæfi að Árni bróðir sé varðstjóri umferðadeildar lögreglunnar.
Laugardagur 24. mai
Kl.8:45 var flug til Akureyrar en þaðan ók ég til Siglufjarðar til að vera viðstödd hátíðardagskrá í tilefni af 90 ára kaupstaðarafmæli og 190 ára verslunarafmæli bæjarins.
Um miðjan daginn sótti ég sýningu nemenda í grunnskóla Siglufjarðar.
Skrapp síðan í kaffi heim til Skarphéðins Guðmundssonar, fyrrum bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins á Siglufirði.
Kl.15 var hátíðardagskrá í Bíó Café þar sem bæjarbúum var boðið upp á kræsingar, ræður og skemmtiatriði í tilefni dagsins.
Meðal annars var Örlygur Kristfinnsson, safnastjóri Síldarminjasafnsins á Siglufirði, heiðraður fyrir mikilvægt framlag sitt til bæjarins.
Síðan ók ég til Akureyrar og flaug tilbaka til Reykjavíkur.
Náði ég heim akkúrat í tíma til að sjá íslenska lagið This is your life flutt í Eurovision.
Frábær frammistaða hjá okkar fólki og lagið dúndurgott.
Kl.21 hittumst við systkinin ásamt mökum (sem eru á landinu) og borðuðum saman í tilefni af fertugsafmæli Árna bróður sem er á morgun.