Nú eru myndir frá Grænlandi komar inn.
Föstudagur 27. júní
Kl.12 átti að vera flug frá Grænlandi heim til Íslands, en því seinkaði talsvert.
Var því komin heim seinna en ég reiknaði með.
Um kvöldið vann ég í ljósmyndum sem ég hef tekið á Grænlandi.
Setti ég myndir frá 23. júní hér inn á heimasíðuna en afganginn set ég inn á morgun.
Fimmtudagur 26. juni
Kl. 8:45 forum vid a Dronnings Ingrids Hospital(SANA) i Nuuk i Grænlandi til ad heyra hvernig sjukrahusid thjonustar ibuana a svædinu.
Kl.10 forum vid i menningarhusid i Nuuk, Katuaq og i heimsokn til NAPA, sem ser um norrænt samstarf i Grænlandi.
Kl.11 for eg i vidtal hja Nicolai S. Qvistgaard, bladamanni Grønlandposten(Atuagagdliutit), thar sem eg lysti verkefnum velferdarnefndar Nordurlandarads.
Hér er netúgáfa af viðtalinu(hluti viðtalsins).
I hadeginu bordudum vid grænlenskan mat i menningarhusinu.
Kl.13:30-16:00 hittum vid bæjarfulltrua og embættismenn i Nuuk til ad ræda um verkefni sveitarfelagsins sem snua ad felagslegum vanda barna og unglinga.
Kl.16:15-17:15 hittum vid fjølskyldu- og heilbrigdisradherra Grænlands til ad ræda um aherslur landsstjornarinnar hvad vardar malefni barna og unglinga og felagslegan vanda sem hluti theirra a vid ad strida.
Kl.19-22 var hatidarkvøldverdur i Hans Egedes hus thar sem Ruth Heilmann, forseti Heimastjornarinnar, baud upp a veislumat.
Sidan hitti eg Helgu Lilju sem hefur siglt a skutu fra Noregi til Grænlands med vidkomu a Islandi.
Midvikudagur 25. juni
Kl.7:45 forum vid af stad i siglingu inn Kobberfjorden og sidan Lysefjorden.
Vid vorum afar heppin med vedur, fengum sol og blidu, en nokkud kalt var i lofti.
I Lysefjorden forum vid i land i Tuapaarsunnguit, thar sem buid var a fyrri tid.
Thar flutti sagnfrædingur fyrirlestur um lifnadarhætti Inuitana sem tharna bjuggu a sinum tima.
A svædinu saum vid m.a. gamlar grafir og leiktæki sem buin voru til fyrir børn til ad thjalfa upp likamsstyrk theirra.
Eftir hadegi la leidin i heimsokn til Melkebøtten i Nuuk.
Melkebøtten er til husa vid gømlu høfnina og tekur a moti vanræktum børnum.
Børnin koma thangad af sjalfsdadum til ad fa mat ef thau eru svøng eda treysta ser ekki til ad vera heima hja ser vegna vanrækslu foreldranna.
Thau koma einnig thangad til ad leika ser og hvila sig.
I Melkebøtten er solarhringsvakt og tharna er hægt ad hysa 9 børn i næturgistingu i einu thegar med tharf.
Eftir ad heimsokninni lauk for eg i simavidtal hja Morgunbladinu um fund velferdarnefndar Nordurlandarads.
Kl.17:15 fundudum vid Beate og Mats og gerdum drøg ad frettatilkynningu um fund velferdarnefndar Nordurlandarads.
Sidan hittist nefndin i kvøldmat og samthykkti thar frettatilkynninguna.
Um kvøldid skrapp eg nidur i skutu i høfninni til ad hitta Helgu Lilju og vini hennar sem eru ad sigla um Grænland og i kringum Ameriku til ad gera kvikmynd fyrir franska sjonvarpid um ahrif loftslagsbreytinga.
Þriðjudagur 24. júní
Kl.8:45 fórum við í PAARSIA, lýðheilsustöð Grænlands, þar sem við fengum upplýsingar um heilbrigðisáætlun Grænlendinga.
Kl.10 kynnti MIPI, þekkingarsetur um börn og ungmenni í Grænlandi, okkur starfsemi sína og stöðu barna og ungmenna í landinu.
Kl.11-12 vorum við í KIIIN þar sem Fjölskyldu- og heilbrigðisráðuneytið kynnt okkur þau verkefni sem unnið er að í Grænlandi til að bæta félagslega stöðu barna og ungmenna.
Kl.13:00-14:30 kynnti lögreglustjórinn í Grænlandi okkur starfsemi lögreglunnar og þau verkefni sem þeir sinna þar bæði í bæjum og úti á landsbyggðinni.
Kl.15-17 skoðuðum við nýja háskólann í Nuuk, kynntum okkur starfsemi hans og Tungumálasetrið sem þar er einnig til húsa.
Kl.18 sótti Inga Dóra Guðmundsdóttir mig á hótelið, en hún er fyrrum bæjarfulltrúi í Nuuk og nú ritstjóri Atuagagdliutit, Grönlandsposten.
Ókum við heim til foreldra hennar, Benediktu Thorsteinsson og Guðmundar Þorsteinssonar, en þau buðu mér og fleirum í glæsilega kvöldmáltíð.
Benedikte hefur verið virk í stjórnmálum og var m.a. félagsmálaráðherra Grænlands um tíma og formaður Kalak, vináttufélags Grænlands og Íslands.
Fiann Paul frá Póllandi var einnig í kvöldverðinum en hann kemur af stað verkefnum sem snúa að börnum og unglingum víða um heim.
Hann ferðaðist m.a. um Ísland og myndaði börn í leikskólum, en þær myndir eru hluti af verkefninu Dialog og prýða nú vegginn á Lækjartorgi sem hylur brunarústirnar.
Paul er að koma af stað vinnubúðum fyrir börn og unglinga í Grænlandi og er með heimasíðuna www.fiannpaul.com.
Þar má sjá myndirnar af íslensku börnunum í Dialog verkefninu, skemmtilegar myndir af íslenskum börnum héðan og þaðan af landinu.
Í dag birtist þessi grein eftir mig "Frelsisofstækið og forvarnir" í blaðinu 24 stundum og þessi "Þjóðarviljinn leiddur fram" í Viðskiftablaði Morgunblaðsins.
Mánudagur 23. júní
Kl.9:45 var flug til Nuuk í Grænlandi.
Kl.14-18 stýrði ég fundi velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
Eftir kvöldmat skruppum við niður á strönd því í dag brenna Grænlendingar bálkesti á ströndinni í tilefni af Jónsmessunni.
Veðrið í Nuuk var afar gott, sól og blíða og því gaman að ganga um bæinn og skoða hann.
Sunnudagur 22. júní
Kl.8 lagði ég af stað suður.
Kl.14-17 stóð Framsóknarflokkurinn fyrir veglegu málþingi í Salnum í Kópavogi til heiðurs Steingrími Hermannssyni, fyrrum formanns flokksins og forsætisráðherra, í tilefni áttræðisafmælis hans.
Kl.18 lá leiðin á Eyrarbakka í grillveislu hjá Helga Hermannssyni.
Vorum við komin heim um kl.23.
Þá pakkaði ég í töku því í fyrramálið liggur leiðin á fund velferðarnefndar Norðurlandaráðs á Grænlandi.
Laugardagur 21. júní
Kl.14 var afar fróðleg ráðstefna um menningarbæinn Siglufjörð í Bátahúsinu á Siglufirði.
Ráðstefnan var hluti af Jónsmessuhátíð Síldarminjasafnsins.
Síðan skrapp ég á Bíókaffi og svo á pallinn til Hermanns Einarssonar, bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins í Fjallabyggð.
Kl.19 bauð Skarphéðinn Guðmundsson og Arndís Bjarnadóttir mér í mat ásamt þeim bræðrum Birki Jóni Jónssyni og Ingvari Jónssyni.
Kl.20:30 var skemmtileg kvöldvaka í Bátahúsinu þar sem leikin voru gömul og góð sjómannalög.
Kl.22 hittist góður hópur hressra göngugarpa á torginu til að taka þátt í Jónsmessugöngu Ferðafélags Siglufjarðar.
Gengum við úr miðjum Skarðsdal upp fjallið í norðvestur.
Síðan gengum við upp á Snók í næstursólina.
Þaðan blasti við okkur stórkostleg sýn yfir Siglufjörð og nærliggjandi fjöll.
Síðan var gengin áfram svokölluð Dalaleið, niður í Úlfsdal í Skriðunum, en þar stóð Dalabær forðum.
Ömmusystir mín, Þórhalla Hjálmarsdóttir og maður hennar Sigurður, bjuggu þar ásamt börnum sínum forðum daga.
Vorum við komin niður Dalaleiðina klukkan að ganga tvö um nóttina.
Var okkur síðan ekið á Siglufjörð þar sem Ásdís beið okkar með rjúkandi heita kjötsúpu.
Lauk þar með stórskemmtilegri sólstöðugöngu.