Föstudagur 8. ágúst
Fyrri part dags fórum við í Ólafsvík og á Rif til að versla í matinn.
Seinni partinn fórum við Hákon, Ingunn systir, Sigurgeir, Sigmundur Árni og Tinna í gönguferð um Snæfellsnesið, vestanvert.
Gengum við frá Beruvík í suður að Hólavogi.
Á miðri leið áðum við og borðuðum nestið, flatkökur með hangikjöti.
Á göngunni sáum við margar gamlar rústir, en á þessum slóðum er mesta þéttni gamalla verstöðva á Norðurlöndum.
Göngunni lauk í Hólavogi en þar má m.a. finna fallegt hraun.
Snæfellsjökull blasti við á þessum slóðum en jökullinn hopar talsvert um þessar mundir.
Fimmtudagur 7. ágúst
Fyrri partinn vorum við úti að dunda okkur í góða veðrinu.
Seinni partinn fórum við í gönguferð áður en við tókum á móti Árna bróður og Hjördísi sem komu í heimsókn til okkar.
Miðvikudagur 6. ágúst
Í dag fórum við mamma, Ingunn systir, Sigurgeir og Sigmundur Árni í langa göngu um Klettsgötu.
Gengum við Klettsgötu frá Búðum og í vestur átt, framhjá Búðakletti.
Eftir að hafa gengið upp á Búðaklett skoðuðum við Búðahelli, en þar má sjá dropasteinsmyndanir.
Í hrauninu sáum við t.d. minkabæli, rjúpnafjölskyldu og falleg blóm.
Við fjölskyldan höfum lagt okkur fram um að ganga Klettsgötu, helst árlega.
Seinni partinn fórum við í gestastofu Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls á Hellnum.
Um kvöldið riðu góðir gestir í hlað, Víðir Herbertsson og Geir Högnason.
Þriðjudagur 5. ágúst
Fyrri part dags fórum við í kirkjugarðinn við Búðakirkju til að skoða leiði Sigmundar Sigurgeirssonar.
Dagurinn nýttist einnig í að tína bláber og hreinsa þau í sólinni með Ingunni systur.
Seinni part dags bættist mamma í hópinn.
Um kvöldið elduðum við Ingunn, Sigurgeir, Simmi, mamma og Hákon góðan lax.
Mánudagur 4. ágúst
Í dag tókum við til og gengum frá húsinu.
Seinni partinn fórum við Anna Roth á torgið til að fá okkur kaffi latte, eplaköku með rjóma og heitri vanillusósu og að hitta Ólaf Baldursson, fjallgöngufélaga okkar.
Um kvöldið ók ég í Borgarnes þar sem Hákon slóst í för með mér út á Snæfellsnes.
Sunnudagur 3. ágúst
Kl.7 mættum við Anna niður á torgið en þaðan lá leiðin yfir Lágheiðina til Ólafsfjarðar ásamt hressu fjallgöngufólki, alls 25 manns.
Frá Ólafsfirði gengum við yfir Rauðskörð til Siglufjarðar.
Rauðskörðin eru vel brött og ágæt áskorun fyrir göngufólk.
Síðan var gengið niður í Héðinsfjörð.
Þar skelltum við okkur yfir vaðið á eyrinni.
Við norðvesturenda Héðinafjarðarvatns áðum við og borðuðum gómsætt lambalæri.
Næst lá leiðin yfir Hestskarðið.
Í Hestskarðinu var nokkur þoka.
Ágætlega gekk þó að koma sér niður Hestskarðið og til Siglufjarðar.
Kl.18 vorum við komin heim í hús eftir fína göngu í hópi skemmtilegra félaga.
Um kvöldið skruppum við Anna niður á torgið að hlusta á tónleika og hitta fólk.
Laugardagur 2. ágúst
Kl.4:45 vöknuðum við pabbi og undirbjuggum okkur fyrir seinni daginn í sjóstangveiðimóti SJÓSIGL.
Kl.6 létu trillurnar úr höfn og stímuðu á miðin.
Við á Elvu Björgu SI 84 fórum aftur í mynni Eyjafjarðar og veiddum þar til kl.14.
Veðrið var gott og við veiddum ágætlega.
Kl.16 vorum við komin í land aftur.
Kl.18 lá leiðin í kvöldverð bæjarstjórnar Fjallabyggðar í Síldarminjasafninu í tilefni þess að Margit F. Tveiten, sendiherra Noregs, heimsótti Siglufjörð til að kynna sér gömul og góð tengsl Siglufjarðar og Noregs frá síldarárunum.
Kl.20 fórum við pabbi í glæsilegt lokahóf sjóstangveiðimóts SJÓSIGL í Allanum.
Þar voru verðlaun afhent fyrir góðan árangur í mótinu.