Föstudagur 29. ágúst
Kl.10 var fundur þingflokksformanna ásmat Sturlu Böðvarssyni, forseta Alþingis, þar sem við ræddum um störf haustþingsins sem byrjar í næstu viku þann 2. september.
Kl.13 fór fram útför Steinunnar Brynjúlfsdóttur frá Vídalínskirkju í Garðabæ.
Að útför lokinni fór ég í erfidrykkjuna á Hótel Loftleiðum.
Hér er minningargrein mín um Steinunni Brynjólfsdóttir sem birtist í dag í Morgunblaðinu.
Seinni part dags vann ég í gögnum.
Fimmtudagur 28. ágúst
Morguninn fór í útréttingar í símanum.
Kl.14 hófst fundur allsherjarnefndar Alþingis þar sem við fórum yfir vinnuáætlunina fyrir komandi haustþing.
Ræddum við m.a. um nálgunarbann og fleiri mál sem tengjast vinnu nefndarinnar.
Kl.17 fórum við Heiður og Snorri í sjósund.
Sjósund er hressandi og gott fyrir líkama og sál eins og allir vita sem prófað hafa.
Miðvikudagur 27. ágúst
Kl.9 hófst fundur Vestnorræna ráðsins í framhaldsskólanum í Grundarfirði.
Á fundinum ræddum við m.a. um Höyvíkursamninginn og samþykktum ýmsar ályktanir, þ.á.m. um stuðning við sjálfbærar sel- og hvalveiðar.
Um miðjan daginn ók ég suður.
Grænlenski þingmaðurinn, Thomas Kristensen, frá Ammassalik á Austur-Grænlandi, fékk far í bæinn þ.a. við gátum rabbað heilmikið saman um sjálfstæðisumræðuna sem fram fer í Grænlandi um þessar mundir.
Seinni partinn fylgdist ég með glæsilegri heimkomu landsliðisins í handbolta.
Um kvöldið skrifaði ég minningargrein.
Þriðjudagur 26. ágúst
Fyrri hluta dags nýttist tíminn á fundi Vestnorræna ráðsins í Grundarfirði, en ég hleyp í skarðið fyrir Guðna Ágústsson á fundinum.
Um miðjan daginn skrapp ég til Reykjavíkur og tilbaka.
Eftir að fundi Vestnorræna ráðsins lauk var ferðinni heitið í Stykkishólm.
Þaðan sigldum við um Breiðafjörðinn með Sæferðum.
Veðrið var ágætt þ.a. gott tækifæri gafst til að fara með bátinn nálægt klettunum til að sjá fuglana vel.
Afar gaman var að sjá t.d. haförn á flugi.
Undir lok ferðar var boðið upp á ferskan forrétt beint úr hafinu.
Skelfiskurinn og ígúlkerjahrognin smökkuðust vel og féllu í kramið hjá öllum.
Í dag birtist greinin "Ný löggæsluverkefni" eftir mig í dagblaðinu 24 stundir þar sem ég fjalla um niðurstöður hættumats á hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi, en matið var unnið af greiningadeild Ríkislögreglustjóra.
Mánudagur 25. ágúst
Kl.11-13 var fundur í utanríkismálanefnd Alþingis.
Kl.17:15-18:30 var fundur í stjórn Rótarýklúbbs Seltjarnarness.
Seinni partinn lá leiðin í Grundarfjörð til að taka þátt í ársfundi Vestnorræna ráðsins.
Sunnudagur 24.ágúst
Kl.7:50 hófst bein úsending af úrslitaleik Íslands og Frakkaland í karlahandbolta á Ólympíuleikunum í Kína.
Ísland tapaði leiknum en getur verið afar ánægt með þennan sögulega árangur að ná silfri í þessari vinsælu hópíþrótt á Ólympíuleikum.
Kl.10-16 var Íslandsmeistaramótið í haglabyssuskotfimi(skeet) á Iðavöllum þar sem Hákon keppti ásamt 18 öðrum skyttum.
Keppnin var jöfn og spennandi allt mótið.
Íslandsmeistari þetta árið varð Hákon Þór Svavarsson(SFS) og Hákon Juhlin Þorsteinsson(SÍH) varð Íslandsmeistari unglinga.
Kl.18:00-22:30 fórum við Steini í kvöldverðarhóf í Norræna Húsið i tilefni þess að 40 ár eru liðin frá opnun hússins.
Laugardagur 23. ágúst
Kl.10-16 var fyrri hluti Íslandsmótsins í haglabyssuskotfimi(skeet) haldinn á Iðavöllum, svæði Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar(SÍH).
Hákon keppti á mótinu ásamt 18 öðrum keppendum.
Um miðjan daginn kom hluti bæjarstjórnar í heimsókn til okkar til að skoða aðstæður á svæðinu og fylgjast með mótinu.
Seinna um daginn lá leiðin inn á "Sýninguna 3 hæðir" á Laugarvegi 60, en þar sýndu Guðlaug Halldórsdóttir, Fiann Paul og Halldóra Emilsdóttir verk sín.
Síðan fór ég í te til mömmu.
Um kvöldið skruppum við upp á Valhúsahæð til að sjá flugeldasýningu menningarnætur kl.23:08.
Í dag voru fréttir af því að virkja ætti Hvála í Ófeigsfirði.
Hér eru myndir úr gönguferð við Hvalárgljúfur frá árinu 2004, en þá vorum við fjölskyldan í nokkra daga í góðu yfirlæti í Ófeigsfirði.
Auðvelt er að ganga yfir Hvalá á ágætri göngubrú sem er nálægt ósnum.