Föstudagur 18. september
Um morguninn skoðuðum við Skútustaði, Dimmuborgir og Grjótagjá.
Þar sem þingflokksfundur var haldinn í Reykjavík kl.11 tók ég nokkur símtöl til samráðs við þingmenn.
Síðan var tími til að skella sér í jarðböðin góðu sem komu skemmtilega á óvart.
Þar var aðstaðan öll til fyrirmyndar.
Í hádeginu borðuðum við í Gamla bænum áður en leiðin lá að Námaskarðssvæðinu, Kröfluvirkjun, Víti og Leirhnjúk.
Ókum við síðan i austur að Möðrudal þar sem við fengum okkur vöfflukaffi.
Um nóttina gistum við á Egilsstöðum.
Fimmtudagur 17. september
Í dag lá leiðin austur með viðkomu á Goðafossi og hvalasafninu á Húsavík .
Næst ókum við inn í Ásbyrgi og skoðuðum Botnstjörn og fleira.
Síðan skoðuðum við Vesturdal undir leiðsögn Hauks Dórs.
Á leiðinni að Mývatni skoðuðum við Dettifoss frá vesturbakkanum.
Um nóttina gistum við í Vogafjósi við Mývatn.
Miðvikudagur 16. september
Í dag ókum við norður með viðkomu í Bjarnahöfn og á Eiríksstöðum þar sem við skoðuðum tilgátuhúsið.
Síðan skoðuðum við Víðimýrarkirkju, Glaumbæ og selasafnið á Hvammstanga.
Um nóttina gistum við á Akureyri.
Þriðjudagur 15. september
Kl.9 var lagt upp í 6 daga ferð hringinn í kringum landið.
Fyrst skoðuðum við Deildartunguhver og Reykholt.
Eftir að hafa borðað í Borgarnesi lá leiðin út á Snæfellsnes með viðkomu á Arnarstapa, Hellnum, Djúpalónssandi og Sögumiðstöðinni í Grundafirði.
Gistum við í Stykkishólmi.
Mánudagur 14. september
Kl.9 hófst ráðstefna um vistvæna bíla á Hótel Hilton Nordica.
Skrapp síðan í klippingu.
Kl.13.30 var fundur í þinghúsinu.
Kl.15 var fundur í Íslandsdeild Norðurlandaráðs á nefndasviði Alþingis.
Kl.17 var tími fyrir sjósundið.
Kl.20 skrapp ég á kosningavöku í norska sendiráðið til að fylgjast með úrslitum í norsku Stórþingskosningunum.
Sunnudagur 13. september
Í dag tókum við restina af skiltunum niður og þrifum þau öll.
Hreinsuðum líka bæði grillin.
Laugardagur 12. september
Um miðjan daginn komu Ingveldur og Tryggvi til okkar.
Nýttum við daginn í að taka niður hluta skiltanna.