Föstudagur 7. september
Kl.12 hófst fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem Benedikt Hjartarson fræddi okkur um sjósund.
Fimmtudagur 6. september
Kl.9:30 fór ég í klippingu til Lilju í TEAM.
Kl.12 lá leiðin á rótarýfund á Hótel Sögu.
Um kvöldið fór Hákon í busapartý.
Miðvikudagur 5. september
Var á skrifstofunni um morguninn.
Kl.12 hófst fundur fánahópsins svokallaða, en í honum er áhugafólk um aukna notkun þjóðfánans.
Við Lúðvík Geirsson, alþingismaður, erum að vinna með hópnum að frumvarpssmíð og vinnslu þingsályktunar um aukna notkun fánans.
Þriðjudagur 4. september
Kl.13 hófst fundur allsherjar- og menntamálanefndar.
Þar ræddum við m. a. stöðu náttúruminjasafns Íslands.
Mánudagur 3. september
Kl.17 skrapp ég í Nauthólsvík.
Þar fórum m. a. Ingunn systir, Simmi og Emil Örn í sjósund.
Hitastig sjávar var 11,3 gráður.
Um kvöldið hreinsaði ég villisveppi heima hjá Húna og Elínu.
1.-2. september var ég erlendis