Föstudagur 24. maí
Kl.12 stýrði ég fundi í Rótarýklúbbi Seltjarnarness í golfskálanum á Seltjarnarnesi.
Kl.14:30 var tími hjá tannlækni.
Fimmtudagur 23. maí
Dagurinn fór í ýmsar útréttingar.
Kl.20:15 var seinni hlutinn af New York námskeiðinu í Endurmenntun Háskólans.
Miðvikudagur 22. maí
Kl.10 var fundur með nefnd Sameinuðu þjóðanna sem er að skoða lagalegt jafnrétti kynjanna.
Kl.19 var smink og kl.19:30 vorum við Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, í Kastljósinu hjá Sigmari að ræða um nýjan stjórnarsáttmála.
Á sama tíma voru þingflokksfundir hjá Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum þar sem gengið var frá nýrri ráðherraskipan.
Þriðjudagur 21. maí
Dagurinn fór í frágang á pappírsgögnum og tannviðgerðir.
Um kvöldið lá leiðin á miðstjórnarfund Framsóknarflokksins þar sem samþykkt var að ganga til ríkisstjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokkinn.
Mánudagur 20. maí
Skrapp í Ásmundarsafnið í dag í tilefni þess að í dag hefði listamaðurinn orðið 120 ára.
Sunnudagur 19. maí
Kl.16 lá leiðin í fermingarveislu Margrétar Stefánsdóttur, frænku minnar í Hafnarfirði.
Um kvöldið gerði ég tillögur á netinu varðandi framlög úr Norræna menningarsjóðnum.
Laugardagur 18. maí
Kl.12 hittumst við sjúkraþjálfararnir sem útskrifuðumst árið 1986 úr HÍ hjá Hönnu Marteins á Greiningarstöðinni í Kópavogi.
Sýndi hún okkur stöðina og starfsemi hennar.
Seinnipartinn héldum við afmælisveislu í tilefni þess að Hákon er tvítugur í dag.