Föstudagur 20. desember
Kl.12 hófst jólafundur Rótarýklúbbs Seltjarnarness.
Á boðstólnum var síld, hangikjöt og möndlukrem.
Fimmtudagur 19. desember
Kl.18:30 hófst árlegt jólaboð Siggu frænku og Golla.
Allir voru í jólaskapi að venju og skemmtu sér stórvel.
Miðvikudagur 18. desember
Kl.13 fór ég í stutt sjónvarpsviðtal á Stöð 2 vegna íþróttamanns ársins 2013.
Kl.14:30 var hátíðlegur starfsmannafundur í velferðarráðuneytinu sem endaði á því að við sungum Heims um ból.
Þriðjudagur 17. desember
Kl.10 var símafundur með starfsfólkinu sem sinnir landamærahindranastarfinu á skrifstofu Norræna ráðherraráðsins í Kaupmannahöfn.
Mánudagur 16. desember
Kl.15:30 var fundur nefndar sem undirbýr hátíðarhöld vegna 100 ára kosningaréttar kvenna árið 2015.
Fundurinn var að þessu sinni haldinn í fundarsal á Lækjarbrekku.
Sunnudagur 15. desember
Dagurinn nýttist m. a. í góða göngu í kuldanum.
Laugardagur 14. desember
Kl.13:30 lá leiðin til Húna og Elínar Bjarkar að passa litlu Ingibjörgu Siv, meðan foreldrarnir skruppu í IKEA.
Kl.18 komu stelpurnar í saumaklúbbnum, Anna Hrönn, Heiður og Hróðný, heim til mín í mat.
Bauð ég upp á danskt jólaborð.