Föstudagur 28. febrúar
Skrapp upp á flokksskrifstofuna í dag.
Kl.14 var ráðstefna um konur og sveitastjórnarmál nú í aðdraganda sveitastjórnakosninganna.
Fimmtudagur 27. febrúar
Um morguninn var fundur um norræna velferðarstefnu.
Kl.12 bauð Eygló Harðardóttir, ráðherra jafnréttismála, nýju Sambandi femínistafélaga framhaldsskólanna, til hádegisverðarfundar í ráðherrabústaðnum.
Kl.18 komu Elín Björk og Ingibjörg Siv í mat, en Húnbogi komst ekki því hann var á ráðstefnu þar sem kynntir voru naglar til að negla í brotna lærleggi.
Miðvikudagur 26. febrúar
Dagurinn hófst á fundi um -Konur í "karlastörfum"- á Grand hótelinu.
Kl.12 hitti ég Bigga og Heiði á Horninu til að skipuleggja hefðbundna árlega reunionið hjá 6.-S úr MR, sem haldið verður um miðjan maí.
Kl.17:30 var stjórnarfundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness.
Þriðjudagur 25. febrúar
Dagurinn fór í hefðbundin fundarstörf og fleira.
Skrapp að hitta ömmustelpuna um kvöldið.
Mánudagur 24. febrúar
Kl.17 var tími fyrir sjósund.
Fór með bílinn í dag á gott pústverkstæði sem heitir Betra púst.
Hröð og snögg þjónusta.
Sunnudagur 23. febrúar
Kl.10 var fræðslufundur í Seltjarnarneskirkju þar sem Þór Whitehead, sagnfræðingur, sagði frá hernaðarmannavirkjum á Seltjarnarnesi í seinna stríðinu.
Kl.11 hófst konudagsmessa í Seltjarnarneskirkju.
Þar las ég seinni ritningalesturinn fyrir hönd Kvenfélags Seltjarnarness.
Seinni part dags var nýttur í göngutúr við Gróttu.
Laugardagur 22. febrúar
Kl.11 var morgunkaffifundur framsóknarmanna á Digranesvegi 12 í Kópavogi.