Vefur Al˛ingis Senda tˆlvupÛst til Siv Vefur FramsÛknarflokksins Ganga Ì flokkinn VefslÛir fiingm·l LÌf og starf ¡lit DagbÛkin Greinar og rÊur Pistlar Myndir
    prentvæn útgáfa

    Friðleifur Jóhannsson heiðraður


    11/08/2009

    Texti af vef Dalvíkurbyggðar:

    "Á Fiskideginum mikla á Dalvík, laugardaginn 8. ágúst, var afhjúpað járn- og glerlistaverkið Vitinn í nýja menningarhúsinu Bergi.

    Listaverkið er eftir Höllu Har, gler- og myndlistakonu. Hún gaf Dalvíkurbyggð verkið til minningar um Friðleif Jóhannsson (f.1873 d.1967), sem var afi eiginmanns hennar Hjálmars Stefánssonar. Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri, veitti listaverkinu viðtöku fyrir hönd bæjarins.

    Friðleifur var útgerðarmaður á Dalvík og Siglufirði um og eftir þarsíðustu aldamót og lét sig málefni bæjarfélaganna miklu varða. Hann hóf fyrstur, í félagi við bróður sinn Jóhann, vélbátaútgerð á Dalvík árið 1906 og hefur verið reist minnismerki um það í fjörunni þar sem þeir lentu fyrsta vélbáti sínum Viktori. Friðleifur var sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Svarfdæla frá 1904-1920 og 1921-1927. Hann var einnig formaður fyrstu fræðslunefndar á Dalvík.

    Fjöldi afkomenda Friðleifs og Sigríðar Stefánsdóttur konu hans auk annarra gesta á Fiskideginum mikla voru viðstaddir athöfnina. Listaverkið stendur í anddyri Bergs menningarhúss."

    Ofangreindur texti birtist í dag á vef Dalvíkurbyggðar. Sótti ég athöfn þessa ásamt fjölda ættingja. Börn þeirra Friðleifs og Sigríðar, sem komust á legg, hétu Anna, Kristín(Dídí), Jóhann, Gunnlaugur, Snorri og Stefán(föðurafi minn).