Föstudagur 22. febrúar
Byrjaði daginn á að skreppa í morgunkaffi á stofnuna til pabba.
Í hádeginu lagði hluti fjölskyldunar af stað til Siglufjarðar til helgardvalar.
Ferðin til Siglufjarðar gekk vel og vorum við komin norður um kl.18.
Kl.20:30 frumsýndi Leikfélag Siglufjarðar mjög skemmtilegt verk, Tveggja þjónn, þar sem Daníel Pétur Daníelsson og fleiri fóru á kostum.
Leikstjóri er Elfar Logi Hanneson, en höfundur leikritsins er Carlo Goldoni.
Fimmtudagur 21. febrúar
Kl.10:30 hófst fundur á Alþingi á óundirbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Guðni Ágústsson var með fyrirspurn til forsætisráðherra um efnahagsmál fyrir hönd framsóknarmanna.
Kl.12:15 var rótarýfundur á Hótel Sögu.
Kl.14 fór ég í klippingu til Lilju í Greiðunni.
Kl.17 var fundur um umhverfis- og menntamál á flokksskrifstofunni þar sem rædd voru ný frumvörp um menntamál og skipulagsmál.
Um kvöldið samdi ég grein sem mun birtast í dagblaði í næstu viku.
Miðvikudagur 20. febrúar
Kl.8:30 var fundur í allsherjarnefnd Alþingis.
Kl.10:15 var fundur í utanríkismálanefnd Alþingis.
Kl.13:30 hófst fundur á Alþingi á umræðum um störf þingsins þar sem Huld Aðalbjarnardóttir og Sigfús A. Karlsson tóku þátt í umræðunum fyrir hönd framsóknarmanna.
Sigfús undirritaði drengskaparheit sitt í upphafi fundar og var komin í pontu stuttu síðar.
Hann sló þar með met Jóns Björns Hákonarssonar um tvær mínútur og er því sá varaþingmaður sem hefur farið hvað fyrstur í pontu eftir að hafa undirritað drengskaparheit sitt á þinginu.
Síðan hófust fyrirspurnir til ráðherra þar sem ég var m.a. með fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um lagalega stöðu líffæragjafakorta hér á landi.
Kl.16 hófst þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.19:30 var boð utanríkisráðherra til heiðurs tveimur konum sem eru fulltrúar Palestínu og Ísrales í friðarferli kvenna í Miðausturlöndum.
Seinna um kvöldið skruppum við Hákon í heimsókn til mömmu.
Þriðjudagur 19. febrúar
Kl.9:30 var morgunkaffi Jöklarannsóknarfélags Íslands(JÖRFÍ).
Kl.10:45 var ég með viðtal á Alþingi.
Kl.12 hófst opinn fundur Framsóknarflokksins um samgöngumál á Hótel Borg.
Kl.13 var fundur þingflokksformanna og þingforseta þar sem við förum yfir þingstörfin sem eru framundan.
K.13:30 hófst þingfundur á Alþingi.
Spurði ég félagsmálaráðherra út í vinnu barna og unglinga.
Tók ráðherra undir þá beiðni mína að gerð yrði úttekt á umfangi vinnuframlags barna og unglinga og að farið yfir reglur í því sambandi.
Kl.17 var ég á fundi á Seltjarnarnesi.
Kl.20 var aðalfundur Kvenfélagsins Seltjarnar á Seltjarnarnesi.
Skrapp síðan að hitta Heiði og Siggu Björns, en við erum að skipuleggja samkomu í vor þar sem 6-S, útskriftarbekkur okkar úr MR, ætlar að hittast.
Í dag var dreift á Alþingi svari umhverfisráðherra við fyrirspurn minni um stöðu vélhjólaaksturs á Íslandi.
Í fyrirspurninni er vísað í nýja skýrslu sem hluti forystu mótorhjólamanna, þeir Jakob Þór Guðbjartsson, Ólafur Guðgeirsson, Einar Sverrisson, Leópold Sveinsson og Gunnar Bjarnason, unnu ásamt fleir aðilum og spurt hvernig ráðherra hyggist nýta hana.
Svarið er með eindæmum slappt og sýnir að ráðherra hefur lítinn skilning á að hópur vélhjólamanna fer ört vaxandi á Íslandi og að hann á sinn rétt til útivistar eins og aðrir hópar.
Ljóst er að það er brýnt umhverfismál að greiða úr því hvar hjólamenn geti farið um og hvar ekki og rétt að hlusta á tillögur þeirra eins og annarra.
Mánudagur 18. febrúar
Kl.13:30-17:00 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Á fundinum gafst tækifæri til að fara yfir þingstörfin næstu daga, undirbúa fyrirspurnir og fleira.
Sunnudagur 17. febrúar
Dagurinn fór í tiltektir og lestur gagna fyrir komandi vinnuviku.
Undirbjó líka tímaritsgrein.
Seinni partinn nýttist tíminn í góðan göngutúr út í Suðurnes.
Um kvöldið leit Hildur systir við í heimsókn til okkar.
Laugardagur 16. febrúar
Kl.11 hófst morgunkaffifundur framsóknarmanna í Reykjavík á Hverfisgötunni.
Fór síðan þaðan á morgunkaffifund framsóknarmanna á Digranesveg 12 í Kópavogi.
Um kvöldið buðum við Siggu föðursystur minni og Golla í humar og lambalæri.