Föstudagur 27. september
Um morguninn skrapp ég í morgunkaffi á stofuna hjá pabba.
Kl.12 var fundur í Rótarýklúbbi Seltjarnarness þar sem við fengum kynningu á starfsemi CRI, Carbon Recycle Internasjonal.
Fimmtudagur 26. september
Um kvöldið nýttist tíminn á örnámskeiði í Endurmenntun Háskóla Íslands.
Miðvikudagur 25. september
Um miðjan daginn fór ég á fund og skrapp í nokkur erindi.
Þriðjudagur 24. september
Dagurinn nýttist í útréttingar.
Um kvöldið hittist saumaklúbburinn heima hjá Önnu Hrönn í mat.
Mánudagur 23. september
Kl.15:30 var fundur nefndar sem er að undirbúa hátíðarhöld vegna 100 ára kosningaréttar kvenna árið 2015.
Kl.17 var tími til að skreppa í sjósund.
Sunnudagur 22. september
Um kvöldið komu Húni, Elín Björk, dóttir þeirra og Hákon í mat.
Laugardagur 21. september
Kl.16 byrjaði endurfundahátíð árgangsins sem útskrifaðist úr Valhúsaskóla árið 1978.
Hátíðin hófst á fordrykk á Barðaströndinni.
Síðan var tekin rúta upp í Való til að skoða skólann og rifja upp gamlar og góðar minningar.
Þar næst tókum við rúnt um Seltjarnarnesið með smá veitingastoppi við Gróttu.
Loks var haldið í félagsheimili Sjálfstæðismanna þar sem við borðuðum góðan mat, nutum skemmtiatriða og dönsuðum fram eftir nóttu.
Mjög góð mæting var á hátíðina en alls mættu 52 og tókst dagskráin í alla staði afar vel.