Fimmtudagur 17. maí
Kl.16 var matarboð hjá mömmu í tilefni þjóðhátíðardags Norðmanna.
Miðvikudagur 16. maí
Um morguninn sást rosabaugur um sólu.
Kl.13:30 var þingflokksfundur framsóknarmanna á Alþingi.
Kl.15 hófst fundur á Alþingi.
Kl.21 borðaði þingflokkur framsóknarmanna saman í Tapas-húsinu.
Þriðjudagur 15. maí
Kl.9 hófst fundur í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis.
Eftir hádegi var ráðstefna um ábyrgð háskóla og ábyrgð stjórnenda í Háskólanum á Bifröst.
Kl.17:30 komu Hákon, Húni og Elín Björk í mat.
Kl.20 lá leiðin í Borgarleikhúsið að sjá Svar við bréfi Helgu.
Afar góð sýning sem er óhætt að mæla með.
Mánudagur 14. maí
Kl.13 var þingflokksfundur framsóknarmanna.
Kl.15 hófst fundur allsherjar- og menntamálanefndar.
Um kvöldið var aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Kópavogi.
Sunnudagur 13. maí
Um miðjan daginn fór ég á hótel Glym á opnun sýningar Önnu Sigríðar, myndhöggvara.
Laugardagur 12. maí
Dagurinn fór í tiltektir og annað stúss.
Um kvöldið hittust nokkrir sjúkraþjálfarar úr hópnum sem útskrifaðist saman úr HÍ 1986 heima hjá Auði Ólafsdóttur.
Við höldum hópinn og hittumst endrum og eins okkur til upplyftingar.