Föstudagur 5. apríl
Kl.17 var haldið upp á 50 ára afmæli Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, með glæsilegum hætti í aðstöðu flokksins að Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Um kvöldið var endurfundahátíð 6.-S, menntaskólabekkjar míns úr MR.
Það er alltaf mikið fjör þegar bekkurinn hittist, enn það gerum við nú árlega.
Fimmtudagur 4. apríl
Um morguninn var ég á kosningaskrifstofu framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi.
Seinni partinn lá leiðin í Fjallabyggð þar sem ég ávarpaði opinn stjórnmálafund framsóknarmanna.
Miðvikudagur 3. apríl
Fór í morgunkaffi á stofuna til pabba.
Kl.12 var fundur í Íslandsdeild Norðurlandaráðs á Alþingi.
Kl.13:30 var blaðamannafundur undirnefndar allsherjar- og menntamálanefndar þar sem við kynntum 10 tillögur til að taka á kynferðisafbrotum gegn börnum.
Góð mæting var á blaðamannafundinn.
Seinni partinn var ég ásamt Þorsteini Sæmundssyni, sem skipar þriðja sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, og Guðmundi Einarssyni að kynna framboðið á Seltjarnarnesi.
Þriðjudagur 2. apríl
Dagurinn nýttist í m. a. að ná í meðmælendalista fyrir framboð Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmunum.
Seinni partinn lá leiðin á opinn stjórnmálafund Framsóknarflokksins í Vík í Mýrdal.
Mánudagur 1. apríl
Dagurinn nýttist í að skoða sig um s. s. á Djúpalónssandi.
Sunnudagur 31. mars
Páskadagur nýttist í afslöppun og að koma sér á Vesturlandið.
Laugardagur 30. mars
Fyrri hluta dags var morgunfundur framsóknarmanna á Akureyri.
Seinni partinn var hátíð Framsóknarflokksins á Egilstöðum þar sem kosningaskrifstofa flokksins var opnuð.